Drög að sameiginlegri yfirlýsingu Breta og Evrópusambandsins hafa gengið fram og til baka að undanförnu, og fastafulltrúar aðildarríkjanna hér í Brussel ræddu þetta síðast í gær.
Samkvæmt þessum drögum, sem fréttastofa hefur séð, er allt útlit fyrir að samkomulag hafi náðst um þrjá mikilvæga þætti í samskiptunum yfir Ermarsund: um viðskipti með matvöru, um nemendaskipti og samræmingu á gjaldtöku fyrir losunarheimildir (ETS-kerfið).
Andy Burnham forsætisráðherra kemur hingað til Brussel 20. nóvember, til fundar við Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins og Antonio Costa, forseta leiðtogaráðs ESB, þar sem búist er við að þessir áfangar verði formlega staðfestir.
Undirbúningur að þessum leiðtogafundi hefur staðið í talsverðan tíma og reyndar var búið að setja hann á dagskrá í sumar, áður en Andy Burnham tók við sem forsætisráðherra og leiðtogi breska Verkamannaflokksins; á ársfundi flokksins í september boðaði Burnham nýja stefnu í samskiptum Bretlands og Evrópusambandsins. „Skaðinn af Brexit hefur verið meiri en ábatinn,“ sagði Burnham við það tækifæri.
Gangast undir reglur um matvælaöryggi
Núverandi samkomulag Breta við Evrópusambandið (Trade and Cooperation Agreement) tryggir tollfrjáls viðskipti með ákveðnum skilyrðum. Framleiðendur í Bretlandi hafa hins vegar kvartað hástöfum yfir þeim kostnaði sem aukin pappírsvinna og öflun vottorða í kringum þessi viðskipti hefur haft í för með sér.
Samkomulagið sem virðist vera í augsýn fyrir leiðtogafundinn hér í Brussel á að draga verulega úr þessu umstangi, en í staðinn þurfa Bretar að gangast undir og aðlaga reglur um matvælaöryggi við þær sem Evrópusambandið setur.
Einnig stendur til að tengja saman þau kerfi losunarheimilda sem þegar eru í gildi hjá Evrópusambandinu og í Bretlandi, sem þýðir að vörur sem fluttar eru yfir Ermarsundið verða undanþegnar slíkum álögum.
Bresk stjórnvöld telja að ávinningurinn hlaupi á milljörðum punda fyrir bresk fyrirtæki; í viðtali við breska tímaritið the Economist fyrr í vikunni sagði Burnham að samningurinn gæti aukið þjóðarframleiðslu Bretlands um 0,4 prósent, eða 17 milljarða punda. „Það er upphæð sem ekki er hægt að líta framhjá,“ sagði Burnham í þessu viðtali.
Greitt fyrir nemendaskiptum
Búist er við að leiðtogarnir staðfesti samkomulag sem ætti að tryggja allt að eitt hundrað þúsund nemendum vegabréfsáritanir og möguleikann á að stunda nám í háskólum beggja vegna Ermarsundsins; Evrópusambandið hefur þó sett fram kröfu um að námsgjöld stúdenta frá ESB-ríkjunum verði þau sömu og breskir stúdentar greiða, og ekki er gert ráð fyrir að það mál verði leitt til lykta á fundinum eftir hálfan mánuð.
Bretar hafa tengt þetta mál við kröfu þeirra um að bresk fyrirtæki verði hluti af áformum Evrópusambandsins um að evrópsk framleiðsla fái forgang þegar kemur að opinberum innkaupum; það eru áform sem íslensk og norsk fyrirtæki fylgjast einnig grannt með.
Vill Burnham afturkalla Brexit?
„Ég ætla að vera hreinskilinn og segja að ég myndi vilja sjá það gerast áður en ég verð allur,“ sagði Burnham í viðtali við ITV sjónvarpsstöðina í október. „En ég ætla ekki að fara framúr almenningi,“ bætti hann við.
Burnham hefur einnig sagt að núverandi ríkisstjórn Bretlands muni ekki beita sér fyrir endurkomu Bretlands í Evrópusambandið, en hann hefur hins vegar ekki útilokað að áform af þessu tagi verði á stefnuskrá Verkamannaflokksins fyrir næstu kosningar, sem haldnar verða ekki síðar en 2029.
Eins og við er að búast hafa talsmenn Evrópusambandsins ekki gefið neitt út á þessar bollaleggingar Breta varðandi framtíðarsamband þeirra yfir Ermarsundið. En málamiðlanir og undanþágur gætu þó verið í boði, ef eitthvað er að marka Michel Barnier, sem stýrði viðræðum Evrópusambandsins við bresk stjórnvöld eftir Brexit.
„Það er fullkomlega raunhæft að hefja slíkar viðræður [um inngöngu] án skilyrða um að Bretar tækju upp evruna,“ sagði Barnier í viðtali við Sky News sjónvarpsstöðina í gær. „En það sem er, og verður óumsemjanlegt, eru skilyrðin fyrir því að verða aðili að innri markaðnum. Þar eru engar málamiðlanir í boði um að velja og hafna, eða fá klæðskerasaumaða aðild. Bretar vita nákvæmlega hvað felst í því að verða hluti af innri markaðnum og tollabandalaginu,“ sagði Barnier, og var þar að vísa í fjórfrelsið; frjálsa för fólks, fjármagns, vöru og þjónustu.
Evrópusambandið gæti einnig ljáð máls á því að Bretar gætu samið sig frá því að verða hluti af Schengen svæðinu, samkvæmt nýlegri frétt Politico vefmiðilsins, þar sem vitnað er í embættismenn hjá framkvæmdastjórn ESB.