Einar Logi Pétursson sem hefur játað innbrot í húsnæði Stjörnugríss á Kjalarnesi og Reykjabúið í Mosfellsbæ birti myndband af innbroti sínu og gagnrýndi aðbúnað dýranna. Á myndbandinu sjást meðal annars dauðir grísir og svín með sár.
Fréttastofa leitaði viðbragða hjá Matvælastofnun og í yfirlýsingu frá Þóru Jóhönnu Jónasdóttur, yfirdýralækni hjá stofnuninni, segir að ábendingum um brot á velferð dýra sé tekið alvarlega og að þeim verði strax fylgt eftir með rannsókn og kröfum um úrbætur ef tilefni þyki til.
„Á myndbandinu sjást dýr með sár. Slíkt getur komið fyrir í öllu dýrahaldi þó ákvæði um aðbúnað dýranna sé fullnægt. En ef það gerist, er ótvíræð krafa yfirvalda að umráðamaður bregðist strax við með viðeigandi meðhöndlun og meðferð dýrsins og stofnunin fylgist ávallt með að slíkt sé gert,“ segir í yfirlýsingunni.
Tilkynnt um fósturmissi í tengslum við innbrot
„Á myndbandinu sést jafnframt gylta að gjóta og dauðir gríslingar. Gríslingar geta fæðst andvana eins og öllum tegundum. Þekkt er að utanaðkomandi stress getur valdið að ótímabært got hefjist. Stofnunin var upplýst um fósturmissi og að fæðing hafi farið af stað hjá nokkrum gyltum í tengslum við innbrotið. Rannsaka þarf nánar það sem kemur fram á myndbandinu, sömuleiðis hvort þetta sé mögulega afleiðing af innbrotinu. Stofnunin mun ekki horfa fram hjá ef brotið hefur verið á dýrum.“
Myndbandið má sjá hér að neðan en rétt er að vara við efni þess.
Í yfirlýsingu Matvælastofnunar segir jafnframt að aðferðir og aðgerðir þeirra sem telja að brotið sé á dýrum megi ekki valda eða auka á þjáningar þeirra.
„Í tilfelli innbrots á gyltubú í tvígang þá ollu því miður aðgerðir viðkomandi, að hleypa dýrum úr stíum sínum og úr húsinu, því að fjöldi dýra bæði slösuðust og drápust. Það er aldrei réttlætanlegt. brotið á dýrum mega aldrei valda eða auka á þjáningar dýra. Í tilfelli innbrots á gyltubú í tvígang þá ollu því miður aðgerðir viðkomandi, að hleypa dýrum úr stíum sínum og úr húsinu, því að fjöldi dýra bæði slösuðust og drápust. Það er aldrei réttlætanlegt.“