Dmitrí Peskóv, talsmaður Pútíns, sagði við blaðamenn í morgun að Kreml hefði ekki borist neinar upplýsingar um hvað Trump og Dmitriev töluðu um. Hann sagði að Dmitriev væri ekki snúinn aftur til Rússlands og því hefðu yfirvöld ekki upplýsingar um hvað þeir hefðu talað um.
Trump vildi ekki segja í gær hvað hann og Dmitriev hefðu talað um. Þeir funduðu eftir viðburð í Hvíta húsinu þar sem Melanía Trump tók á móti erindrekum frá Rússlandi og Úkraínu til að fagna yfirstöðnu vopnahléi í Olesky í Úkraínu.
Bærinn hefur um nokkurt skeið verið í höndum Rússa og hafa borist þaðan fregnir af hræðilegum aðbúnaði íbúa og harðræði sem þeir eru beittir af Rússum.
Rússneskur herbloggari sem var í Oleshky og birti myndir og myndbönd þaðan hefur verið handtekinn og er sagður sakaður um landráð, samkvæmt öðrum herbloggurum. Hann birti færslu um brottflutning fólks frá bænum sem varpaði ljósi á að langfelstir íbúa vildu ekki fara til Rússlands.
Þá segja Úkraínumenn að Rússar hafi notað vopnahléið til að flytja sveitir sínar framar á víglunni nærri Oleshky.
Eftir viðburðinn í Hvíta húsinu í gær fundaði Trump með Dmitriev en hitti ekki úkraínsku sendiherrana.
Þá sagði Trump að „stórt og fallegt“ samkomulag við Rússa væri í vændum. Hann sagði að samkomulagið myndi ekki eingöngu snúast um Úkraínu heldur „gervalla Evrópu“ og að allir yrðu hæstánægðir með það.
Vilja skapa öryggi til framtíðar
Jared Kushner, tengdasonur Trumps og sérstakur erindreki hans, birti í nótt langa færslu sem fjallaði um viðræður um innrás Rússa í Úkraínu. Sú færsla gefur til kynna að verið sé að vinna að einhvers konar samkomulagi um framtíðarskipulagningu öryggismála í Evrópu.
Þar sagði Kushner að í þessari viku hefði hann rætt við bandamenn Bandaríkjanna í Evrópu og Úkraínumenn. Markmiðið væri að mynda raunhæft fyrirkomulag sem kæmi til móts við áhyggjur allra hliða og drægi úr hættunni á átökum í framtíðinni.
„Í meira en þrjátíu ár hafa Evrópa og Rússland átt í basli með að mynda sjálfbært öryggisskipulag. Áratugir af vantrausti, andstæðum öryggissjónarmiðum og hræðilegum afleiðingum þessa stríðs gera þetta mjög erfiða áskorun en hún er nauðsynleg fyrir varanlegan frið.“
Kushner nefndi fimm markmið sem væru til skoðunar.
Eitt þeirra markmiða snýr samkvæmt Kushner að varanlegu samráði um öryggismál. Annað markmiðið snýst um traust samskipti á krísutímum. Það þriðja um aukið gagnsæi í málefnum hernaðar. Það fjórða um gagnkvæmar aðgerðir til að sporna gegn stigmögnun. Fimmta markmiðið snýr svo að því að mynda varanlegan grunn að samstöðu um langtímafrið og öryggi í Evrópu.
„Hvers konar samkomulag verður að virða fullveldi ríkja, landamæri þeirra og sjálfstæða ákvarðanatöku. Hvert ríki mun ráða eigin öryggismálum og bandalögum og ekkert ríki mun hafa neitunarvald yfir fullvalda ákvörðunum annars. NATO verður áfram hornsteinn sameiginlegra varna Evrópu og framtak þetta myndi byggja á núverandi stofnunum og skuldbindingum.“
President Trump today advanced an important discussion with several European leaders about the need for a broader European security architecture that can help establish the conditions for lasting peace. Building on his leadership and the substantive work undertaken this week in Brussels with Ukraine, NATO, and our European partners, @SEPeaceMissions and I wanted to share some of the objectives guiding our ongoing discussions. For more than 30 years, Europe and Russia have struggled to establish a sustainable security framework. Decades of mistrust, competing security concerns, and the devastating consequences of this war make this an extraordinarily difficult challenge, but one that is essential to lasting peace. Our objective is to develop practical arrangements that address the security concerns of all sides, reduce the risk of future conflict, and create a more stable and predictable security environment. We are exploring five principal goals: permanent security consultations, reliable crisis communications, greater military transparency, reciprocal measures to reduce escalation risks, and an enduring framework for long-term European security and stability. Any arrangements must fully respect the sovereignty, territorial integrity, and independent decision-making of every nation. Each country will retain authority over its own security and alliances, and no country would have a veto over another’s sovereign choices. NATO will remain central to European collective defense, and this initiative would build upon existing institutions and commitments. We will continue consultations through the Shell Bay format with Ukraine, NATO, the EU, and our European partners, expanding engagement to ensure that all relevant perspectives and ideas are considered. We will also engage Russia as part of the peace negotiations. Next week in Abu Dhabi, the United States will convene the first trilateral peace discussions with Ukraine and Russia since February. All parties remain intensely engaged in preparing for substantive and productive negotiations. We will consult closely with our European partners on the sidelines and, if progress is made, aim to move toward a broader multilateral format with their direct participation. These ideas continue to evolve, and we welcome thoughtful input. Creating the right structure will be critical to ending this war and transitioning from conflict toward conditions that make possible a durable peace. This is difficult, detailed work. There are no easy solutions. But the opportunity to help end this devastating war and build a foundation for a more peaceful, secure, and prosperous Europe for generations to come makes it a challenge well worth undertaking. We will see how these discussions develop and continue working intensively with all parties toward President Trump’s objective of a comprehensive and lasting peace.
— Jared Kushner (@jaredkushner) November 6, 2026
Erindrekar frá Rússlandi, Úkraínu og Bandaríkjunum munu funda í Sameinuðu arabísku furstadæmunum í næstu viku en það verður fyrsti fundurinn af þessu tagi.
Kushner segir að ef þau fundarhöld muni skila árangri muni ráðamenn í Evrópu koma að næstu viðræðulotu.
„Þetta er erfið nákvæmnisvinna,“ skrifaði Kushner.
„Það eru engar auðveldar lausnir. En tækifærið til að binda enda á þetta hræðilega stríð og skapa grunn fyrir friðsamari, öruggari og farsælli Evrópu til langs tíma gerir þessa áskorun þess virði.“
Kröfur Rússa þær sömu
Kröfur Rússa fyrir innrásina í Úkraínu, sem virðast enn vera kröfur þeirra, sneru að því að ríkjum Austur-Evrópu yrði vísað úr NATO. Þá krefjast þeir einnig þess að fá landsvæði í austurhluta Úkraínu sem þeir hafa ekki getað tekið með hervaldi og að setja ýmsar takmarkanir á herafla Úkraínu til framtíðar.
Úkraínumenn hafa áhyggjur af því að þessar kröfur myndu gera Úkraínu mun berskjaldaðri fyrir nýrri innrás seinna meir.
Sjá einnig: Með sömu óásættanlegu kröfurnar
Rússar hafa formlega innlimað stærri hluta Úkraínu en þeir stjórna nú þegar. Mesta áherslu leggja þeir nú á að hernema restina af Donbas-svæðinu svokallaða, sem myndað er af Lúhansk og Dónetskhéruðum.
Rússar stjórna mestöllu Lúhansk og stærstum hluta Dónetsk en ekki svæði sem Úkraínumenn kalla „virkisbeltið“.
Það svæði er um fimmtungur Dónetsk, og inniheldur nokkrar mjög víggirtar borgir.
Rússum hefur ítrekað reynst erfitt að taka úkraínskar borgir án gífurlegrar fyrirhafnar og mikils mannfalls og binda Úkraínumenn vonir við að geta stöðvað Rússa á þessu virkisbelti.
Helstu borgirnar í virkisbeltinu eru Kostíantínívka, Kramatorsk og Slóvíansk.
Í síðasta mánuði hélt Pútín ávarp þar sem hann sakaði Vesturlönd um að bera ábyrgð á innrás hans í Úkraínu. Hann varði einnig tíma í að syrgja fall Sovétríkjanna og talaði um að NATO væri búið að hreiðra um sig á „sögulegum svæðum“ Rússa.
Sjá einnig: Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna
Ef Úkraínumenn myndu gefa eftir Donbas-svæðið og virkisbeltið yrðu varnir þeirra gegn mögulegri annarri innrás Rússa seinna meir, veikari en ekki. Þar að auki er lítið sem bendir til þess að Rússar hafi yfir höfuð burði til að hernema svæðið, miðað við gang hersveita þeirra undanfarna mánuði og jafnvel ár.
Úkraínumenn standa enn frammi fyrir þeim sama vanda að þurfa einhvers konar öryggistryggingar eigi þeir að semja um frið við Rússa. Það er að segja, einhverjar tryggingar fyrir því að Rússar ákveði ekki aftur að gera innrás.