Einar Logi stígur fram á Instagram með eins og hálfs mínútu langt myndband.
„Ég fór inn í svínabú á Kjalarnesi þar sem aðstæðurnar eru hræðilegar. Næstum öll svínin þar voru í þröngum búrum þar sem þau geta ekki snúið sér við. Ég sá mörg svín með legusár, dauð svín og önnur svín sem voru við það að deyja. Þau eyða öllu lífinu sínu þarna sem getur numið allt að fjórum árum. Svipaðar aðstæður er hægt að sjá á öllum svínabúum á Íslandi. Það ætti engin lífvera að þurfa að þjást svona mikið allt lífið sitt. Við skulum hætta að borða svínakjöt,“ segir Einar í myndbandinu.
Myndbandið má sjá hér að neðan en rétt er að vara við efni myndbandsins. Eigandi Stjörnugríss segir að hægt sé að mála allt upp í slæmu ljósi og skipti þá ekki máli hvort um sé að ræða skóla landsins, elliheimili, leikskóla eða þá landbúnað.
Geir Gunnar Geirsson er forstjóri Stjörnugríss og hafði ekki séð myndbandið þegar fréttamaður hafði samband við hann.
„Auðvitað fer hann á alla staði þar sem er eitthvað kræsilegt fyrir svona gerpi að sýna,“ segir Geir Gunnar. Myndefni sé vissulega úr búi Stjörnugríss en sýni að hans mati ekki rétta mynd. Matvælastofnun sé nýbúin að taka búið út og geri það reglulega, opinberir dýralæknar skoði sláturhúsin og svo sé Stjörnugrís sjálfur með þjónustuaðila sem fari yfir allt á tveggja vikna fresti.
Alltaf sé hægt að mála ófagra mynd
„Frávikin okkar eru mjög fá og svínarækt yfirhöfuð er með mesta eftirlit af öllu búfjárhaldi á Íslandi og þótt víða væri leitað.“
Geir Gunnar segir að um áróðursmyndband sé að ræða en auðvitað sé ýmislegt sem sé ekki gott. Þarna megi sjá dauðfædda grísi sem séu hluti af landbúnaði.
„Við getum ekki bjargað því. Þær gjóta um nóttina, sumir eru aumingjar og eru dauðir inni í þeim.“
Varðandi legusár og annað bendir Geir Gunnar á nærtækt dæmi, hundinn sinn. Sá sé tólf ára, allur í legusárum og svipuð dæmi megi finna á spítölum landsins þar sem hægt væri að taka myndir og mála upp ófagra mynd.
Sé að koma upp um sjálfan sig
Geir Gunnar segist ætla að tilkynna lögreglunni myndbandið og furðar sig á því að það sé í birtingu.
„Þetta er innbrot. Þetta er stolið efni. Hann er að koma upp um sjálfan sig.“
Einar Logi er talinn hafa brotist inn í búið bæði í maí og svo aftur í september. Geir Gunnar segist ekki viss um úr hvoru innbrotinu myndefnið sé.
Hann segir skrýtið að ekki sé búið að nafngreina Einar Loga fyrir löngu.
„Maður sem er að brjótast inn og svo er hann að slá sér til riddara með svona myndbandi. Á meðan er hann sjálfur búinn að drepa fullt af grísum, fótbrjóta gyltur, hleypa þeim út og rífa niður innréttingar.“
Úr verður rjúkandi rúst
Geir Gunnar vísar til þess að þegar Einar Logi vann skemmdarverk í innbroti sínu í svínabúið og hleypti gylltum og grísum út hafi afleiðingarnar verið skelfilegar.
„Það drápust eiginlega allir grísirnir og gyllturnar voru lausar úti um allt,“ segir Geir Gunnar og skýrir nánar.
„Sjö eða átta gylltur misstu fóstur og við þurftum að slátra fullt af þeim. Ein var fótbrotin eftir síðasta innbrotið. Þegar stíurnar eru opnaðar ganga gyllturnar um í myrkrinu og þá troðast grísirnir bara undir. Úr verður rjúkandi rúst.“
Í myndbandinu má sjá titrandi grís sem fær Geir Gunnar til að staldra við.
„Hvernig aðstæður er maðurinn að bjóða upp á? Um miðja nótt með vasaljós? Grísirnir þekkja hann ekki og vita ekkert hvað er í gangi. Þetta er eins og maður stæði yfir rúminu hjá þér með síma og vasaljós.“
Dýrlingur sem fremji hryðjuverk
Geir Gunnar er hugsi yfir öllu saman.
„Þetta er eins og Hamas-liði. Hann birtir mynd af sér sem dýrlingi. Svo fremur hann hryðjuverk eftir á,“ segir Geir Gunnar. Verk hans dæmi sig sjálf.
Þá sé ýmislegt ýkt og ruglað í myndbandinu, svo sem að svínin séu lokuð inni. Boxin séu opnanleg þannig að þau ráði því hvort þau fari út eða ekki.
„Auðvitað má benda á ýmislegt í landbúnaði, hitt og þetta sem betur mætti fara,“ segir Geir Gunnar.
„En þetta verður aldrei fullkomið. Hvorki svona dýrahald né annað í lífinu. Hvorki í skólum, spítölum, elliheimilum, leikskólum og svo mætti lengi telja,“ segir Geir Gunnar.
Gefi mynd sem sé ekki nógu góð
„Þetta er áróðursmyndband sem mun fara út um allt en ef hann finnur ekkert nema þetta þá finnst mér það vel sloppið.“
Hann er hugsi yfir því að Einar Logi hafi aðgang að þessu myndefni.
„Það er búið að handtaka gerpið, hann er með stöðu sakbornings og ég veit ekki hvort hann er að reyna að bæta úr með því að fá einhverja samúð. Auðvitað er leiðinlegt að fá þetta í loftið og þetta gefur mynd sem er ekki nógu góð.“
Vísir hefur falast eftir viðtali við Einar Loga vegna málsins.