Þóra Jóhanna Jónasdóttir yfirdýralæknir segir mikilvægt að Matvælastofnun berist ábendingar ef aðbúnaður eða umhirða dýra er talin brjóta á velferð þeirra.
„Við rannsökum allar ábendingar. Þær eru allar teknar alvarlega og þeim strax fylgt eftir með rannsókn máls og kröfum til umráðamanns ef ábendingin reynist á rökum reist,“ sagði Þóra í hádegisfréttum útvarps.
Þar brást hún við myndbandi sem Einar Logi Pétursson birti af innbrotinu inn í húsnæði Stjörnugríss á Kjalarnesi á Instagram.
Í myndskeiðinu sjást dýr með sár, dauðir grislingar og gylta að gjóta.
Þóra segir að það geti komið fyrir í öllu dýrahaldi að dýr fái sár, líkt og sjáist í myndbandinu.
„En ef það gerist er það ótvíræð krafa yfirvalda að umráðamaðurinn bregðist strax við með viðeigandi meðhöndlun og meðferð.“
Hún segir fylgst með slíku í reglubundnu eftirliti með dýrahaldi. „Við fylgjum því eftir ef það finnast frávik við eftirlit í aðbúnaði eða umhirðu.“
Blm: Sár og eins og sést á baki eins gríssins – það er klárt frávik er það ekki?
„Það er krafa um að ef það koma sár að dýrin fái viðeigandi meðhöndlun og meðferð. Það er það sem stofnunin þarf nú að rannsaka hvort hafi verið gert í þessu tilfelli.“
Svona myndband sem er tekið við innbrot – þið lítið á þetta sem ábendingu, er það ekki? Þið farið og skoðið málið?
„Þetta er klárlega ábending en það er afar brýnt að taka fram að aðferðir og aðgerðir þeirra sem telja mögulega brotið á dýrum – þær mega aldrei valda og auka á þjáningar dýra. Í tilfelli þessa innbrots því miður hefur komið í ljós að þessar aðgerðir viðkomandi að hleypa dýrum út ollu því að fjöldi dýra slasaðist og drápust. Það er aldrei réttlætanlegt.“
Þóra segir að MAST fari árlega í reglubundið eftirlit á svínabú. Fái stofnunin ábendingar umfram það sé strax brugðist við.
Fréttin hefur verið uppfærð.