1.157 hafa skrifað undir lista til að mótmæla fyrirhuguðu vindorkuveri að Hnotasteini, milli Kópaskers og Raufarhafnar. Franska fyrirtækið Qair hyggst reisa þrjátíu tvö hundruð metra háar vindmyllur að Hnotasteini á Hólaheiði í Norðurþingi. Sveitarstjórn Norðurþings vill að virkjunin verði sett í nýtingarflokk en sem sakir standa er hún í biðflokki.
Einn þeirra sem hafa mælt hvað harðast gegn vindorkuverinu er Elvar Árni Lund, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs Norðurþings.
„Það hefur komið góð gagnrýni frá minnihlutanum. En meirihlutinn virðist ekki vilja sjá neitt nema þetta og þeir hafa bara tekið einhliða afstöðu með Qair snemma í málinu. Málið virðist hreinlega verið rekið þannig að það er ekki hlustað á neitt nema þeirra skoðanir.“
Náttúru- og dýraverndunar sjónarmið ráði för
Svæðið eru svokölluð óbyggð víðerni, þar sem fólk getur notið einveru og náttúru án truflunar frá mannvirkjum eða umferð. Að mati Elvars er umhverfisskýrslan sem unnin er fyrir Qair hroðvirknislega unnin og sérstaklega kaflinn um fuglalífið á svæðinu:
„Þetta er inn á einhverju þéttasta rjúpnavarpssvæði á Íslandi. Auk þess að þá er lítið gert úr farflugi heiðagæsa sem nota svæðið í farflugi snemma á vorin og haustin á leið til austur Grænlands.“
Sagði starfi sínu lausu
Elvar Árni er, eins og áður segir, starfsmaður Norðurþings. Aðspurður segir hann þetta hafa sett sig í erfiða stöðu:
„Jú vissulega. Þegar ég sá í hvað stefndi í haust þá tók ég þá ákvörðun að segja starfi mínu lausu því ég sá mig ekki geta unnið undir þessum kringustæðum og getað tjáð mig frjálst og óháð um þetta.“
Elvar er sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs. „Þetta mál hefur ekki komið inn á afgreiðslu á mitt svið á þeim tíma sem ég hef starfað.“
Viðbrögð sveitarstjórnarinnar við uppsögn Elvars voru að hans sögn engin:
„Lítil sem engin. Sennilega hef ég verið óþægilegur ljár í þúfu. Þetta mál hefur hreinlega ekki verið rætt við mig tæp 4 ár sem ég hef starfað þarna þrátt fyrir að ég sé með lögheimili á Melrakkasléttu, var sveitarstjóri áður en Öxafjörður sameinaðist Norðurþingi og þekki þetta svæði mjög vel. Þetta mál hefur ekki komið inn á afgreiðslu á mitt svið sem ég hef starfað“