Á lista Reykjavíkurborgar yfir efni til að nota í kynfræðslu fyrir miðstig grunnskóla er meðal annars mælt með Netflix þáttunum Big Mouth, en á miðstigi eru börn venjulega á aldrinum 10 til 13 ára. Í þáttunum er meðal annars teiknað atriði þar sem hormónaskrímslið Maury hefur munnmök við afhöggvið höfuð bandaríska útvarpsmannsins Garrison Keillor. Þættirnir eru víða merktir fullorðnum eða 16 ára og eldri, og í Ástralíu eru þeir bannaðir innan 18 ára. Á Netflix á Íslandi eru þættirnir merktir óviðeigandi fyrir undir16 ára.
Á síðu Jafnréttisskóla Reykjavíkur, sem heyrir undir Skóla- og frístundasvið, segir að þar sé „efni til að nota í kennslu í kynfræðslu fyrir miðstig grunnskóla og frístundamiðstöðva“. Undir myndböndum stendur orðrétt:
„Big Mouth eru teiknimyndaþættir um kynfræðslu fyrir miðstig og unglingastig á Netflix. Þættirnir eru svolítið ögrandi en hafa notið mikilla vinsælda hjá ungmennum, sniðugt að horfa á þátt sem fræðari hefur valið fyrirfram og umræður í kjölfarið.“
Skjáskot: reykjavik.is
Sama kynning birtist á síðu um kynfræðslu á unglingastigi. Hvergi er getið um aldursmörk við Big Mouth, ólíkt til dæmis Sex Education á unglingasíðunni, þar sem borgin nefnir erlend aldursmörk.
Höfundarnir trúðu ekki að atriðið slyppi í gegn
Big Mouth er bandarísk teiknimyndaþáttaröð um kynþroska ungmenna á aldrinum 12–13 ára. Í sjöunda þætti fyrstu þáttaraðar, „Requiem for a Wet Dream“, heggur Maury höfuðið af Garrison Keillor og þvingar það til munnmaka.
Nick Kroll, einn höfunda þáttanna og rödd Maury, sagði við Variety í fyrra að Netflix hefði leyft atriðið: „Maury was allowed to have sex with the decapitated skull of Garrison Keillor … and [Netflix] still let that go.“
Jennifer Flackett, annar höfundur, sagði við ScreenRant um sama atriði: „I can’t believe they let us do it.“ Hún bætti við að þá hefði hún áttað sig á að Netflix ætlaði að leyfa þeim að gera „whatever we want“.

Aldursmerkingar víða um heim
Ástralska flokkunarnefndin gaf fyrstu þáttaröðinni R 18+ árið 2017. Breska BBFC gefur fyrstu þáttaröðinni 15 en þáttaröðum 5–8 18, og á Netflix í Bretlandi er þáttaröðin merkt 18. Í Þýskalandi og Hollandi eru þættirnir merktir 16 ára, og sömuleiðis á Netflix á Íslandi og Norðurlöndum. Í Bandaríkjunum eru þeir merktir TV-MA, ætlaðir fullorðnum, og Common Sense Media mælir með þeim fyrir 15 ára og eldri.
Bandarísku foreldrasamtökin Parents Television Council kröfðust þess haustið 2021 að Netflix yrði rannsakað vegna þáttanna.
Ekki liggur fyrir hvort eða hvar þættirnir hafa verið sýndir í skólum borgarinnar. Listinn er efni sem fræðurum stendur til boða.
Nútíminn hefur sent verkefnastýrum Jafnréttisskóla Reykjavíkur fyrirspurn um hvers vegna þættirnir séu á lista fyrir miðstig, hver hafi valið þá og hvort farið hafi verið yfir efni þeirra. Svör þeirra verða birt þegar þau berast.