Einar Logi Pétursson, 25 ára karlmaður sem braust inn í húsnæði Stjörnugríss á Kjalarnesi og í Reykjabúið í Mosfellsbæ fyrr á árinu birti í gær myndbönd innan úr svínabúunum Þar mátti meðal annars sjá dauða og veikburða grísi og svín með áverka.
Stjörnugrís hefur sagt að myndefnið gefi villandi mynd af starfseminni, Einar Logi hafi brotist inn í tvígang til að ná myndefni í seinna innbroti sem hann náði ekki í því fyrra. Sjálfur hefur Einar Logi hafnað þessum fullyrðingum í samtali við fréttastofu og sagt að dýrin hafi verið í slæmu ásigkomulagi áður en hann gerði tilraunir til að hleypa þeim út.
Stjörnugrís hefur ekki gefið kost á viðtali vegna málsins í dag. Sif Traustadóttir sem starfað hefur sem héraðsdýralæknir og eftirlitsdýralæknir og þannig haft eftirlit með slíkum búum segir myndefnið ekki koma sér á óvart.
„Þetta eru um tuttugu ár síðan ég var að vinna sem eftirlitsdýralæknir. Mér sýnist á myndefninu að það hafi lítið sem ekkert breyst á þessum tíma. Það sem sló mig þegar ég var að vinna þarna var að mér fannst ég oft vera máttlaus til þess að breyta hlutum. Það voru gerðar athugasemdir við einhverja hluti og svo var kannski bætt úr einhverju litlu en maður var endalaust að gera aftur sömu athugasemdirnar aftur og aftur.“
Á endanum hafi henni þótt tilgangslaust að gera athugasemdir, hún hafi gert sömu athugasemdir hjá sömu rekstraraðilum ár eftir ár. Hún lýsir því að kerfið sjálft sé þannig gert að ekki sé hægt að tryggja dýravelferð.
Hvers vegna heldurðu að svo sé ekki?
„Það er verið að taka lifandi dýr eins og til dæmis í tilviki svína, dýr sem eru mjög gáfuð og þeim er haldið innandyra alla ævi, í mjög þröngum aðstæðum og þetta er bara mjög óeðlilegt. Þetta eru ekki dýr sem fá að upplifa sitt eðlislæga atferli og það er svo mikil krafa um að afurðirnar, kjötið af þeim sé ódýrt að það er ekki hægt í þessu kerfi að veita þeim það sem þau þurfa og uppfylla þeirra eðlislægu þarfir.“
Hún segist upplifa að baráttan fyrir dýravelferð sé líkt og barátta við vindmyllur. Málið er að hennar mati ekki bundið við eitt bú.
„Mér finnst þetta bara líta nákvæmlega eins út og þegar ég var að vinna við þetta fyrir tuttugu árum síðan. Það er ástæða fyrir því að ég er sjálf hætt að kaupa þessar afurðir, ég gat ekki séð að það væri hægt að breyta þessu alveg sama þótt að það séu gerðar einhverjar kröfur um einhverja fleiri sentímetra handa þeim og það breytir því ekki að þau eru innandyra við þröngar aðstæður alla ævi og það er að mínu mati bara ekki hægt að uppfylla eðlislægar þarfir dýranna,“ segir Sif.
„Ég met það þannig að þetta sé kerfislægur vandi og það er ekki bara eitthvað eitt bú sem er vondi karlinn í þessu þessu máli. Þetta er bara þannig starfsemi, að mínu mati er bara ekki hægt í þessu kerfi að uppfylla þarfir dýranna og veita þeim velferð. Þannig að ég bara hef persónulega tekið þá ákvörðun að taka ekki þátt í þessu með því að kaupa ekki afurðirnar.“
Vonar að málið verði til vitundarvakningar
Rósa Líf Darradóttir formaður Samtaka um dýravelferð segir myndefnið sýna svart á hvítu hverjar aðstæður dýra í slíkum aðstæðum séu. Það komi ekki á óvart.
„Við á Íslandi erum rosalega gjörn á að trúa því að við förum betur með dýr hér en erlendis. Verksmiðjubúskapur er bara verksmiðjubúskapur sama hvort hann sé íslenskur eða ekki. Það hefur verið erfitt fyrir Íslendinga að meðtaka þetta en ég held að þetta verði til þess að almenningur átti sig á því hvað þarf að eiga sér stað til þess að svínakjöt eða hamborgarhryggurinn endi á matarborðinu.“
Rósa segir matvælaframleiðslu á borð við þessa vera iðnað sem ekki þoli dagsins ljós. Myndefnið sýni fram á það.
„Ég vona að neytendur átti sig á því að við höfum valdið til þess að velja, við getum hafnað þessum afurðum og þannig endar þetta. Þetta eru dýr sem eru rosalega greind, skyni gæddar verur og við förum svona með þau til þess að við getum keypt þau úti í búð alla daga, allt ódýrt. Það væri frábært ef fleira fólk áttar sig á því að við stýrum þessu. Þetta þarf ekki að eiga sér stað. Við þurfum bara að hætta að borða verksmiðjuframleitt kjöt.“