Í kringum einkavæðingu bankanna urðu umskipti á pólitískum ferli Davíðs Oddssonar. Í einkavæðingunni var vikið frá þeirri stefnu sem Davíð hafði sjálfur fylgt fram að því, að eignarhald þeirra skyldi verða dreift, og bankarnir í raun afhentir aðilum sem virðast hafa notast við gagnkvæmar lántökur til að kaupa hlutinn. Feðgarnir Reynir Traustason og Jón Trausti Reynisson gáfu á dögunum út bókina Davíðstíminn, þar sem farið er yfir feril Davíðs. Þeir eru gestir Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.
Davíðstíminn: Þarna verður vinkilbeygja á ferli Davíðs Oddssonar