Í tilkynningu þess efnis á vef Stjórnarráðsins segir að markmið stefnunnar sé að draga úr skaða af völdum áfengis og annarra vímuefna og tryggja fólki jafnt aðgengi að fjölbreyttri þjónustu sem mæti þörfum þess. Þá séu lýðheilsa, þekking og virðing fyrir mannréttindum höfð að leiðarljósi.
„Megináherslur stefnunnar felast í því að efla forvarnir og snemmtæk inngrip, bæta aðgengi að meðferð, endurhæfingu og skaðaminnkandi þjónustu og styrkja stuðning við aðstandendur og börn fólks með vímuefnavanda,“ segir í tilkynningunni.
Starfshópnum, skipuðum af Ölmu D. Möller heilbrigðisráðherra, var falið að móta heildarstefnu í áfengis- og vímuvörnum. Við mótun stefnunnar hafi hópurinn byggt á stöðumati málaflokksins hérlendis í samráði við hagsmunaaðila og með alþjóðleg viðmið og leiðbeiningar til hliðsjónar. Þá hafi tuttugu umsagnir borist frá almenningi og hagsmunaaðilum í samráðsgátt stjórnvalda.
„Ný stefna tekur mið af alþjóðlegri þróun og íslenskum aðstæðum og þörfum. Hún byggist á heildrænni, gagnreyndri og þverfaglegri nálgun sem nær frá forvörnum og snemmtækum inngripum til meðferðar, endurhæfingar og skaðaminnkunar.“
Stefnan taki við af þrettán ára gamalli stefnu stjórnvalda í áfengis- og vímuvarnamálum.
„Eldri stefna á þessu sviði var frá árinu 2013 og því tímabært að endurskoða hana í ljósi margvíslegra breytinga á undanförnum árum, jafnt samfélagslegra, breytinga á viðhorfum til áfengis- og vímuefnavanda og ekki síst þekkingar á sviði forvarna og meðferðar.“
Framkvæmd stefnunnar verði útfærð í fimm ára aðgerðaáætlun. Meðal verkefna sé að skýra ábyrgð þjónustuveitenda, efla menntun og nýliðun starfsfólks, samþætta heilbrigðis- og félagsþjónustu og bæta gagnasöfnun og árangursmat. Einnig sé stefnt að samhæfðu mati á þjónustuþörf og miðlægum biðlista.
„Stýrihópur um áfengis- og vímuefnameðferðarkerfið leiðir þá vinnu í samstarfi við þjónustuveitendur, notendur og aðra hagaðila. Þar verður verkefnum forgangsraðað og ábyrgð, tímasetningar, mælikvarðar og kostnaður skilgreind.“