Íranskir miðlar greina frá hljóðum frá tveimur flugskeytum á Suza-svæðinu á eyjunni Qeshm en eyjan er mikilvægur þáttur í olíuflutningaleið um svæðið.
Í samtali við bandaríska fjölmiðla greinir Donald Trump Bandaríkjaforseti frá því að árásin hafi verið minniháttar en að loftvarnarkerfi Írana hafi verið eytt á mest 15 mínútum. Hann lýsti árásinni ekki frekar.
Talsmenn Bandaríkjastjórnar hafa greint frá því að loftvarnarkerfi Írans hafi veikst að miklu leyti við umfangsmiklar árásir í upphafi árása Bandaríkjanna og Ísraels á Íran en að Íranir reyni að byggja það upp, ásamt öðrum hernaðarinnviðum, á ný.