Dregið verður úr framleiðslu á Cybertruck-bílum í verksmiðju Tesla í Texas um mitt næsta ár. Elon Musk, stofnandi og framkvæmdastjóri Tesla, greindi frá þessu í færslu á X í gær.
Musk sagði ekki til um það hvort til standi að hætta framleiðslu á bílunum eða hvort þeir verði framleiddir annars staðar, né heldur hvað yrði um óafgreiddar pantanir. Í staðinn ætlar fyrirtækið að leggja áherslu á framleiðslu Cybercab-bíla í verksmiðju Tesla í Texas.
Cybercab er sjálfkeyrandi tveggja sæta leigubíll án stýris og fótsiga sem var tekinn í notkun í Austin, höfuðborg Texas, í september. Aðdáendur Cybertruck-bílanna lýstu yfir áhyggjum sínum við tilkynningu Musk, en hann fullvissaði þá um að Cybertruck-bílarnir yrðu áfram til.
Sala á Cybertruck undir væntingum
Cybertruck bílarnir voru fyrst kynntir af Tesla fyrir sjö árum. Við það tilefni sagði Musk að fyrirtækinu hefðu borist 250.000 forpantanir innan nokkurra daga.
Upphaflega var ráðgert að framleiðsla hæfist árið 2021, en framleiðslu bílanna var ítrekað frestað og fyrstu bílarnir voru afhentir viðskiptavinum undir lok árs 2023. Framleiðslugeta í verksmiðju Tesla í Texas var áætluð 250.000 bílar á ári en salan hefur verið langt undir því.
Þegar dró úr eftirspurn í Bandaríkjunum hóf fyrirtækið að einbeita sér að sölu á bílunum erlendis, og voru fyrstu bílarnir afhentir í Suður-Kóreu fyrir ári síðan og í Sameinuðu arabísku furstadæmunum í janúar á þessu ári.
Nokkuð hefur verið um innkallanir á Cybertruck bílum og kvartanir yfir gæðum bílanna.