Saksóknarar höfðu farið fram á dauðarefsingu gegn Mackenzie og lífstíðardóm fyrir hina 28.
Sum barnanna voru bundin á meðan þau sveltu til dauða. Yfirvöld fundu að minnsta kosti fjögur hundruð lík í grunnum gröfum í Shakahola-skógi þar sem Mackenzie leiddi sértrúarsöfnuð sinn. Í einhverjum tilfellum hafði fólk verið grafið lifandi eða líkum kastað ofan í skurði sem fólk gerði þarfir sínar ofan í.
Meðal þess sem hann sagði fylgjendum sínum var að menntun væri af hinu illa og að nútímalyf sömuleiðis. Konum var gert að raka af sér hárið eða eiga ekkert við það.
Mackenzie var sakfelldur í síðasta mánuði.
Í frétt Reuters segir að Mackenzie hafi verið dæmdur í hundrað ára fangelsi fyrir að svelta fólk og í önnur hundrað ár fyrir fjölda morða. Hann neitaði sök og sagðist ekki hafa þvingað neinn til að svelta sig.
Hann stendur einnig frammi fyrir öðrum ákærum sem snúa að morði á 52 í þorpi skammt frá skóginum. Í heildina er Mackenzie sum sé sakaður um að hafa banað um fimm hundruð manns en hann hefur einnig lýst yfir sakleysi sínu í því máli.
Í heildina hefur Mackenzie verið ákærður í þremur mismunandi málum. Hann var meðal annars sakaður um morðin, hryðjuverk, manndráp, misnotkun barna, pyntingar og önnur brot. Ekki er búið að rétta yfir honum vegna tveggja þessara mála, samkvæmt AP-fréttaveitunni.
Búið er að bera kennsl á um sextíu af líkunum sem fundust í skóginum.
Lokaði kirkjunni og flutti út í skóg
Mackenzie stofnaði söfnuðinn Good News International Ministries árið 2003. Á næstu sextán árum stækkaði söfnuðurinn hratt, þar sem Mackenzie var með útibú víða um landið og birti auglýsingar í sjónvarpi.
Árið 2019 var kirkjunni lokað og Mackenzie flutti í Shakahola-skóg. Hann hvatti fylgjendur sína til að koma með sér og varaði við því að dómsdagur væri í nánd.
Saksóknarar sögðu hann hafa nýtt frægð sína til að laða fylgjendur sína til sín í skóginum. Þar er fólkið sagt hafa búið í leirhúsum á víð og dreif um skóginn.
Helstu samstarfsmenn Mackenzie beittu fólk sem neitaði að fylgja skoðunum hans ofbeldi.
Mál sértrúarsafnaðarins hefur leitt til ákalla um hertar reglur og aukið eftirlit hvað varðar trúarhópa í Kenía. Sérstakur starfshópur var myndaður árið 2023 og lagði hann fram tillögur að breytingum á lögum árið 2024. Þær breytingar hafa ekki verið gerðar að lögum enn.