Einar Logi birti í gær myndband á Instagram af innbroti sínu í svínabú hjá Stjörnugrís. Forstjóri hjá Stjörnugrís segir myndbandið ekki gefa rétta mynd af starfsemi búsins en mála megi upp ófagra mynd af flestum hlutum. Þá hafi Einar Logi sjálfur valdið dýrunum miklum skaða með athæfi sínu.
Vísir hefur ekki náð tali af Einari Loga sem ber við önnum við vinnu í dag. Hann segir í skriflegu svari til blaðamanns að myndbandið sé tekið upp í svínabúinu hjá Stjörnugrís á Kjalarnesi.
„Ég ætlaði að birta myndband um þetta mál miklu fyrr en ég var alltaf að bíða eftir að fá tölvuna mína til baka frá lögreglunni því þá gæti ég edit-að vídeóið í tölvunni,“ segir Einar Logi.
Myndbandið má sjá að neðan en ástæða er til að vara við því.
Lögregla lagði hald á tölvubúnað hans eftir að hann var handtekinn í tengslum við innbrotin í dýrabúin.
„Ég hef ekki heyrt frá lögreglunni varðandi þetta mál,“ segir Einar Logi um birtingu myndbandsins og eftirmál þess.
Enginn annar hafi vitað af innbrotunum
„Ég hef ekki heyrt frá lögreglunni varðandi þetta mál. Ég hef oft hringt og mætt til þeirra til þess að spyrja hvenær ég fæ hlutina mína aftur sem þau tóku í húsleitinni en þau segjast ekki vita hvenær ég geti fengið þá aftur.“
Varðandi refsingu í málinu segist hann eiga von á því að fá sekt þó að hann hafi enga hugmynd um það hversu há sú upphæð verði. Þá segist Einar Logi hafa einn og óstuddur staðið að innbrotunum.
„Ég var einn að verki og það vissi enginn í kringum mig af þessu.“
Í yfirlýsingu frá Stjörnugrís síðdegis segist félagið telja nauðsynlegt að gera grein fyrir alvarlegum afleiðingum innbrota hans og því samhengi sem vanti í framsetningu myndefnisins.
„Einar Logi braust tvívegis inn á gyltubú félagsins, fyrst 11. maí síðastliðinn og aftur 2. september. Félagið lítur háttsemi hans mjög alvarlegum augum. Að mati þess olli fyrra innbrotið dýrunum mikilli hræðslu, alvarlegum skaða og dauða.“
Þrátt fyrir að greint hafi verið frá þessum afleiðingum hafi Einar Logi aftur brotist inn í búið.
Myndefni veki skiljanlega óhug
„Myndskeiðin sýna meðal annars dauða og veikburða grísi, afleiðingar fósturláta og dýr með áverka. Slíkt myndefni vekur skiljanlega óhug. Stjörnugrís telur það hins vegar fyrst og fremst sýna afleiðingar fyrra innbrots Einars Loga. Að setja það fram sem lýsingu á venjubundnum aðbúnaði og umönnun dýranna gefur því mjög villandi mynd af starfseminni.“
Samkvæmt upplýsingum félagsins hafi orðið mikil hræðsla og röskun meðal dýranna við fyrra innbrotið.
„Grísir tróðust undir og ýmist drápust eða slösuðust, í sumum tilvikum alvarlega. Í kjölfarið urðu fósturlát og grísir fæddust andvana eða veikburða. Dýrin þurftu aukna umönnun og tíma til að jafna sig eftir áfallið. Atburðarásin vekur jafnframt grun hjá félaginu um að fyrra innbrotið hafi ekki skilað því myndefni sem Einar Logi sóttist eftir og að hann hafi því brotist aftur inn í von um að geta dregið upp verri mynd af aðstæðum.“
Auki á alvarleika málsins
Stjörnugrís telur háttsemi Einars Loga hafa valdið dýrunum alvarlegum og í sumum tilvikum óbætanlegum skaða. Að mati félagsins sé um dýraníð að ræða.
„Endurtekið innbrot, eftir að greint hafði verið frá skaðlegum afleiðingum hins fyrra, eykur enn á alvarleika málsins.
Yfirlýstur vilji til að vernda dýr réttlætir ekki að þau séu sett í hættu. Sóttvarnir og takmarkanir á aðgangi að búum eru mikilvægur þáttur í vernd, heilsu og velferð dýranna. Með innbrotunum braut Einar Logi gegn þessum ráðstöfunum. Að mati félagsins samræmast aðgerðir hans ekki yfirlýstu markmiði um dýravelferð.“
Ætla að kæra Einar til lögreglu
Stjörnugrís hafnar þeirri mynd sem dregin er upp af starfseminni með birtingu myndefnis án fullnægjandi samhengis.
„Málið verður kært til lögreglu og gögn félagsins lögð fyrir viðeigandi stjórnvöld. Félagið leggur áherslu á að háttsemi Einars Loga og afleiðingar hennar verði rannsakaðar til hlítar,“ segir í yfirlýsingu Stjörnugríss sem fagnar rannsókn Matvælastofnunar og málefnalegri umræðu um aðbúnað og velferð dýra.
„Velferð dýranna á að sjálfsögðu að vera í fyrirrúmi. Þess má geta að eftirlit með dýrunum er mikið og stöðugt. Þjónustudýralæknir skoðar búið á tveggja vikna fresti og búfjáreftirlit Matvælastofnunar kom í eftirlit á búið þann 15. október síðastliðinn. Það eftirlit var án alvarlegra athugasemda.“