Elvar Árni Lund sagði upp starfi sínu sem sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs Norðurþings vegna ágreinings um fyrirhugað vindorkuver á Hnotasteini á Hólaheiði. Hann sagði að málið hefði á fjögurra ára starfsferli sínum aldrei komið inn á borð sviðsins sem honum þætti undarlegt og hann hefði sagt upp til þess að getað tjáð sig frjálslega um málið.
Bergþór Bjarnason, sveitarstjóri Norðurþings, blæs á þær staðhæfingar.
„Þetta kemur mér verulega á óvart. Ég er hans næsti yfirmaður og þegar við vorum að ganga frá starfslokum viðkomandi starfsmanns kom þetta mál ekki í umræðuna. Þetta mál hefur margsinnis farið inn á skipulags- og umhverfissvið. Við vorum að vinna í þrjú ár að nýju aðalskipulagi fyrir sveitarfélagið og þetta er hluti af því og þetta hefur margsinnis farið fyrir nefndina og sem sviðsstjóri situr hann og undirbýr þessa fundi. Við könnumst bara ekki við þetta.“
Hafa vandað til verka
Sveitarstjórn Norðurþings hefur lýst yfir vilja til þess að þessi virkjunarkostur verði færður úr biðflokk yfir í nýtingarflokk. Slíkt hefur vakið andstöðu einhverra íbúa sem hafa meðal annars efnt til undirskriftalista til að mótmæla fyrirhuguðu vindorkuveri.
„Við teljum að við séum búin að vinna þetta ferli faglega og þetta sé í faglegu ferli hjá stjórnvöldum. Það er í umsagnarferli núna.“
Sveitarstjórnin hafnaði beiðni minnihlutans um að efna til íbúakosningu um ágæti vindorkuversins í október. Gagnrýni á þá ákvörðun kom fram á kynningarfundi Qair, á fyrirhuguðum framkvæmdum, á Raufarhöfn í síðustu viku. Nú segir Bergþór að vel komi til greina að halda íbúafund fljótlega, sérstaklega í ljósi þess að erfitt sé að gera sér grein fyrir afstöðu íbúa eins og er. Málið sé í umsagnarferli til 18. nóvember en svo sé tilvalið að halda íbúafund, bæði á Kópaskeri og Raufarhöfn.