Fyrra innbrot Einars Loga Péturssonar í gyltubú Stjörnugríss, 11. maí í vor, olli dýrunum hræðslu, óbætanlegum skaða og dauða og er dýraníð.
Innbrotið segir Geir G. Geirsson forstjóri Stjörnugríss í yfirlýsingu hafa leitt af sér það alvarlega ástand dýranna sem sjá má í myndskeiði sem Einar Logi birti á Instagram í morgun og samræmast ekki yfirlýstu markmiði hans um dýravelferð.
Einar braust að sögn aftur inn í búið 2. september. Veita hafi þurft dýrunum aukna umönnun í kjölfar fyrra innbrotsins. Einar Logi birti myndskeið á Instagram í morgun þar sem sjá má dauða og veikburða grísi, dauð fóstur og dýr með áverka sem hann sagði lýsa bágum aðstæðum svína í búi Stjörnugríss.
Geir segir að myndir Einars gefi mjög villandi mynd af starfseminni og hafnar þeirri mynd sem dregin sé upp með birtingu myndefnis án fullnægjandi samhengis. Fyrra innbrot Einars hafi valdið því að dýr hafi troðist undir og sum drepist.
Fósturlát hafi orðið og grísir fæðst veikburða eða andvana. Jafnframt telji Stjörnugrís að Einar Logi hafi ekki náð myndefni sem hann sóttist eftir í fyrra innbrotinu og ákveðið að brjótast inn aftur í von um að geta dregið upp verri mynd af aðstæðum dýranna.
Eftirlit með dýrunum sé mikið og stöðugt, þjónustudýralæknir skoði búið á hálfsmánaðar fresti og eftirlit búfjáreftirlits Matvælastofnunar 15. október hafi verið án alvarlegra athugasemda.
„Yfirlýstur vilji til að vernda dýr réttlætir ekki að þau séu sett í hættu. Sóttvarnir og takmarkanir á aðgangi að búum eru mikilvægur þáttur í vernd, heilsu og velferð dýranna. Með innbrotunum braut Einar Logi gegn þessum ráðstöfunum,“ segir í yfirlýsingu Geirs Gunnars. Málið verði kært til lögreglu, gögn Stjörnugríss lögð fyrir viðeigandi stjórnvöld og afleiðingar háttsemi Einars Loga rannsakaðar til hlítar.