Karlmaður sem ætlaði að gera vel við sig í tilefni afmælis síns og pantaði vændiskonu á gistiheimili í Reykjavík hefur verið dæmdur í 60 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir vændiskaup og líkamsárás. Afmælisfögnuðurinn fór hins vegar á annan veg en maðurinn hafði ætlað sér og lauk með harkalegri líkamsárás þar sem maðurinn sló konuna ítrekað í andlitið þar til hún missti meðvitund. Landsréttur kvað upp dóm í málinu í gær og þyngdi þar með refsingu mannsins, sem hafði áður hlotið 30 daga skilorðsbundinn fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjavíkur.
Ætlaði að gera vel við sig daginn fyrir afmælið – Allt fór úr böndunum eftir að óvæntur grunur vaknaði