Há skólagjöld á nemendur sem koma frá löndum utan Evrópska efnahagssvæðisins gætu veikt heilbrigðiskerfið og minnkað gæði heilbrigðisþjónustu.
Þetta segir Helga Rósa Másdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh).
Háskóli Íslands hefur birt yfirlit um skólagjöld sem nemendur sem koma utan EES verða að greiða til að stunda nám við skólann. Upphæðirnar nema frá 1,45 milljónum króna upp í 3,25 milljónir fyrir veturinn.
„Maður hefur áhyggjur af því að það verði færri hjúkrunarfræðingar sem munu sjá hag sinn í því að koma til Íslands að starfa. Og síðan kannski ekki síður mikilvægt hefur maður áhyggjur af því að íslenskukunnátta verði lakari og minni við þessa breytingu hjá hjúkrunarfræðingum sem koma hingað til starfa,“ segir Helga.
700 erlendir hjúkrunarfræðingar
Erlendir hjúkrunarfræðingar eru 11% félagsfólks Fíh, það eru 700 hjúkrunarfræðingar. Helga segir stóran hluta þeirra koma frá löndum utan EES.
„Stór hluti þeirra hefur komið til Íslands til að starfa sem hjúkrunarfræðingar og hafa fyrst komið á námsmannaleyfi og skráð sig í íslenskunám í HÍ,“ segir Helga. Þetta sé hagkvæm leið til að komast inn á vinnumarkaðinn sem bæði starfsfólk og heilbrigðiskerfið njóti góðs af.
Nú þegar skortur á hjúkrunarfræðingum
Heilbrigðiskerfið glími nú þegar við viðvarandi skort á hjúkrunarfræðingum.
„Í heilbrigðisstefnu yfirvalda til 2030 er ein af megináherslunum að fjölga heilbrigðisstarfsfólki. Háskólarnir hafa fjölgað námsplássum hér á landi en við því miður náum ekki að vera alveg sjálfbær. Þannig að við höfum þurft að reiða okkur á hjúkrunarfræðinga sem koma erlendis frá,“ segir Helga.
Það geti bitnað á öryggi og þjónustu ef hjúkrunarfræðingar læri ekki íslensku áður en þeir hefji störf.
„Það er klárt mál að íslenskukunnátta skiptir mjög miklu máli í gæðum og öryggi þjónustunnar hvað samskipti varðar. Þetta er auðvitað þjónusta sem byggir mjög ríkulega á samskiptum og mikilvægt að þau séu mjög skýr og að ekki verði misskilningur. Það skiptir líka miklu máli fyrir farsæld hjúkrunarfræðinga sem hingað koma til starfa að þeir hafi íslenskuna,“ segir Helga.
Það auki festu í starfi og skipti máli fyrir framþróun.
Í nóvember í fyrra samþykkti Landspítalinn tungumálastefnu sem gerði íslenskukunnáttu starfsfólks að skyldu. Helga segir þó ekki gerða kröfu um íslenskukunnáttu til að fá starfsleyfi sem hjúkrunarfræðingur.