„Sárs­auki í sinni hreinustu mynd“ - Vísir

„Sárs­auki í sinni hreinustu mynd“ - Vísir

„Sárs­auki í sinni hreinustu mynd“ - Vísir

Halla er fædd árið 1996 og á tvo stráka. Hún er menntaður grunnskólakennari en á uppvaxtarárunum átti tónlistin hug hennar allan og fyrir tveimur árum enduruppgötvaði hún þá ástríðu. 

Halla Jóns er búsett á Akranesi í heimabænum sínum og var að gefa út plötu.Rakel Ýr Stefánsdóttir

Sjálfstraustið dofnaði

Halla settist niður með blaðamanni og ræddi við hann um lífið og listina.

„Ég var mikið í tónlist þegar ég var yngri en svo slökknaði algjörlega á henni eftir menntaskóla. Ég var í Fjölbraut í Garðabæ og þar sinnti ég ýmsum tónlistarverkefnum og sömuleiðis heima á Akranesi, þar sem ég ólst upp. Listin var alltaf svo mikill partur af mér en svo einhvern veginn slokknaði á þessari hlið hjá mér frekar lengi.“

Aðspurð af hverju hún haldi að það hafi gerst segir hún:

Ég held það hafi örugglega verið þessi samanburður sem maður fann svo mikið fyrir á þessum tíma. Þegar ég var yngri hafði ég rosalegt sjálfstraust, mér fannst ég alltaf bara best,“ segir Halla og skellir upp úr. 

Halla hafði mikið sjálfstraust þegar hún var barn en það dvínaði á fullorðinsárunum.Vísir/Anton Brink

„Svo varð ég fullorðin og upplifði ekki það sama þá. Tónlistin féll pínu í skuggann af öðru í lífinu. Þegar ég var búin með háskólanámið þá fór ég að finna sterkt fyrir því að mig langaði að læra sköpunarhliðarnar innra með mér. 

Ég var í listnámi í FG og listadeild í Kennaraháskólanum og svo var ég allt í einu með ekkert skapandi í gangi. Það var einhver rödd innra með mér sem hætti ekki að segja mér að ég yrði að gera eitthvað í þessu. Stundum var bara erfitt að sitja heima á kvöldin að horfa á sjónvarpið því þetta tók yfir innra með mér, að ég yrði að fara að gera eitthvað skapandi ekki seinna en núna.“

Buguð og týnd og fann sig við píanóið

Halla ákveður því að skrá sig á ritlistarnámskeið hjá Skvikaskáldum.

„Það var ótrúlega flott námskeið og ég hugsaði með mér að ég gæti kannski fundið þessu farveg hjá mér með því að skrifa. Svo á lokakvöldi námskeiðsins vorum við að fara yfir verkin okkar og ég var eitthvað smá vonsvikin því mér fannst ég ekki hafa fundið það sem ég vonaðist til að finna innra með mér. 

Ég kom heim frekar buguð og týnd og röddin innra með mér var háværari en áður. Ég settist fyrir framan píanóið í fyrsta skipti í ótrúlega langan tíma og allt í einu byrjuðu lög að dælast út úr mér.“

Halla fann aftur sköpunarneistann við píanóið.Rakel Ýr Stefánsdóttir

Þetta kom Höllu í opna skjöldu en þarna varð eitthvað skrifað í skýin.

„Þarna urðu til þrjú af lögunum sem eru á nýju plötunni og allt fór á flug. Næstu vikurnar upplifði ég rosalega tilfinningaúrvinnslu á öllu sem ég hafði bælt innra með mér síðasta áratuginn. Textarnir flæddu upp úr mér, margt sem ég hafði aldrei nálgast áður og þess vegna er þessi plata svona ótrúlega persónuleg. 

Ég hafði smá áhyggjur af því að eftir útgáfu myndi fólk hugsa bara: Halla, hvað er í gangi hjá þér? Ég fer svolítið djúpt í textana og textarnir eru smá „break-upy“,“ segir Halla og vísar til sambandsslita. 

Bældi allt niður í mörg ár

Halla segist ekki geta nefnt neinn sérstakan atburð sem hún syngur um heldur sé þetta blanda af alls konar tilfinningum.

„Þetta eru sérstaklega erfiðar tilfinningar og sorgir. Alls konar krefjandi hlutir sem maður glímdi einhvern tíma við og vann ekki úr, sársauki í sinni hreinustu mynd. Allt í einu kom ég því öllu í orð í gegnum lögin og eftir að ég byrjaði aftur í tónlistinni þá er þessi innri rödd sem var stanslaust að ýta í mig farin. 

Núna veit ég að þetta er eitthvað sem ég vil gera og á að vera að gera. Þetta kom svo náttúrulega og þægilega til mín, ég er ennþá hálfhissa á því.“

Það kom Höllu á óvart hvað tónlistin flæddi náttúrulega frá henni.Vísir/Anton Brink

Eftir örlagaríka kvöldið fyrir framan píanóið fór Halla í stúdíó til Jóhannesar Ágústs.

„Ég kynntist honum á pródúseranámskeiði sem hann var með og hann er algjör snillingur sem vann töfra á útsendingunni með mér. Platan varð svo bara til á nokkrum vikum.“

Hér má hlusta á plötuna á streymisveitunni Spotify. 

Fundu hvort annað í tónlistinni

Platan Frá byrjun kom út 10. október síðastliðinn en hún varð til fyrir um það bil tveimur árum, þegar Halla var enn í sambandi.

„Ég og barnsfaðir minn hættum saman fyrir um tveimur mánuðum eftir tólf ára samband. Við kynntumst í menntaskóla og tengdumst mikið í gegnum tónlist. Hann hélt áfram í tónlistinni en ég slökkti á minni en það var alls ekki tengt honum að neinu leyti. Það er ótrúlega leiðinlegt að ég hafi ýtt tónlistinni frá mér því við urðum par akkúrat út af tónlistinni. 

Í fyrstu vorum við aðeins að hittast og hættum því svo en það var alltaf tónlistin sem kom okkur aftur saman. Við vorum meðal annars beðin um að syngja saman á tónleikum og endurnýjuðum kynnin þar og það voru alls kyns tónlistartengd tækifæri sem ýttu okkur aftur saman. Það er ótrúlega skrýtið hvernig tónlistin var bæld niður hjá sjálfri mér í gegnum sambandið okkar, svo þegar okkar sögu er að ljúka kviknar aftur á henni.“

Sá ekki fyrir að þetta yrði veruleikinn

Halla segir að fyrrverandi hafi alltaf stutt hana í sínu og þau séu góðir vinir í dag. Þegar hún byrjaði að semja textana sá hún alls ekki fyrir sér að þetta myndi fara svona.

„Flestir sem hafa gengið í gegnum langtímasamband vita að það er ekki alltaf dans á rósum og það gengur á ýmsu, okkar samband var ekkert frábrugðið því. Þegar ég var að semja plötuna var ýmislegt sem mér fannst erfitt að útskýra og það fékk enginn að heyra hana áður en hún kom út nema maðurinn minn og pródúserinn. 

Mér finnst enn í dag erfitt að útskýra lögin og margt sem ég samdi var kannski eitthvað sem ég skildi sjálf ekki almennilega. Núna í dag er smá eins og ég hafi verið að semja um sambandsslitin fyrir tveimur árum en ég var alls ekki á þeim stað þá að ég hefði séð fyrir mér að þetta myndi verða veruleiki í okkar lífi,“ segir Halla en bætir við að platan snúist þó ekki eingöngu um ást og sambandsslit.

Platan Frá byrjun snýst um alls kyns lífsreynslu sem Halla hefur gengið í gegnum.Vísir/Anton Brink

„Það eru einhver þemu úr sambandinu á plötunni en samt alls ekki allt. Sumt er samið út frá öðrum erfiðum atburðum. Lagið Nætursól er til dæmis samið um náinn fjölskyldumeðlim sem hefur gengið í gegnum fíknivandamál og hvernig það er að lifa með fíkn.

Tónlistin er alls ekki öll samin út frá rómantík en svo er oft auðvelt að lesa í öll lög sem ástarlög.“

Enn inni í miðjum storminum

Það mætti segja að Halla sé enn inni í miðjum storminum en tónlistin reynist henni mikið haldreipi.

„Þessar stóru breytingar á mínu lífi eru enn frekar nýtilkomnar. Ég ætla ekki að skafa af því, þetta er eitt það erfiðasta sem ég hef gengið í gegnum. Þetta er svo risastór partur af því hver þú ert, að eiga líf og fjölskyldu með einhverjum. Það er rosalega skrýtið að fara í gegnum þetta og gefa út plötuna líka en ég var löngu búin að ákveða dagsetningu fyrir útgáfuna og ákvað að halda því.“

Halla ákvað að halda sig við settan útgáfudag þrátt fyrir áfall í hennar persónulega lífi.Rakel Ýr Stefánsdóttir

Halla hafði sömuleiðis verið löngu búin að skipuleggja útgáfupartý.

„Daginn sem partíið var þá lá ég uppi í rúmi og hugsaði: „Guð minn góður, ég nenni þessu ekki neitt“. Ég var svo dofin og tilfinningarnar verða svo rosalega ýktar. 

Ég var að ganga í gegnum þennan týpíska tilfinningarússíbana sem ég held að fylgi sambandsslitum, þar sem maður fer niður í djúpar lægðir og svo upp í algjöra maníu og tilfinningarnar eru út um allt.

Mér finnst ég fyrst núna vera kannski aðeins að ná að lenda svolítið betur. Ég er farin að geta séð hlutina í nýju ljósi að einhverju leyti og kannski finna fyrir tilhlökkun. Maður er náttúrulega að syrgja risastórt líf og risastóra framtíð sem maður sá alltaf fyrir sér. Þetta er bara ótrúlega skrýtið og mig hefði aldrei grunað það ferðalag sem biði mín og þennan sársauka. 

Mér finnst ég enn vera inni í storminum og ég veit að þetta krefjandi ferðalag er alls ekki búið. Maður sér þó litlar breytingar frá degi til dags sem er gott.“

Einn stór grátkór

Hún fylgdi útgáfunni eftir með því að mæta í útgáfupartíið sem reyndist á endanum hafa verið mjög góð ákvörðun.

„Vinkonur mínar sóttu mig og voru að tryllast út af spenningi en mig langaði bara að klára þetta af og ég fann ekki fyrir tilhlökkun. Það var mjög leiðinlegt því ég var búin að hlakka rosalega lengi til þessa kvölds og hafði bókað veitingastaðinn OTO með góðum fyrirvara fyrir partýið. 

Svo varð þetta bara ótrúlega fallegt kvöld. Það var smá eins og grátkór hefði tekið yfir staðinn, fólkið mitt var að heyra textana í fyrsta skipti og allir bara grétu. Ég var algjörlega aftengd þarna, komin eitthvert allt annað í hausnum og hélt kannski að fólk væri bara að bíða eftir að lögin kláruðust, sem var auðvitað ekki raunin.

 Allt í einu var ókunnugt fólk farið að ramba inn á staðinn og þetta varð ótrúlega kómískt og fallegt kvöld sem endaði á að vera nákvæmlega það sem það þurfti að vera, mjög í anda plötunnar. Auðvitað var þetta líka dramatískt, það vissu allir af þessum sambandsslitum og fólk var að tengja það við textana og rýna í þá, eins og fólk gerir. 

Í lokalaginu syng ég meðal annars: „Vil verja ævinni tvö syngjandi“, og þá grétu ansi margir.“

Styðja alltaf hvort annað

Halla var þó ekki ein af þeim sem felldu tár.

„Mér fannst ég vera í ábyrgðarhlutverki, þetta var mitt kvöld og fólk var að koma þarna til að heyra lögin mín í fyrsta sinn. Ég var eiginlega bara með lokuð augun þegar platan var spiluð en viðbrögðin voru alveg ótrúlega falleg.“

Fyrrverandi maður Höllu mætti og studdi við hana á þessu stóra kvöldi.

„Við eigum auðvitað tvö börn saman og erum rosalega góðir vinir, hann styður mig algjörlega í gegnum þetta. Kvöldið var örugglega líka erfitt fyrir hann en hann er rosalega mikið með mér í liði og við höfum alltaf verið stuðningsmenn hvors annars, reynt að blása lífi í vængi hins, það hefur alltaf verið þannig.“

Í gegnum þessar miklu lífsbreytingar segist Halla finna fyrir mikilli sköpunargleði, þó á allt annan hátt en hún er vön.

„Þetta er erfitt tímabil og að miklu leyti er minni orka í mér en samt sem áður öðruvísi kraftur en áður. Tempóið hjá mér er miklu vægara en venjulega, það koma dagar þar sem ég hef enga orku til að gera annað en bara það sem þarf til að komast í gegnum daginn og aðra daga fæ ég bylgjur af alveg sjúkum krafti þar sem ég get skapað rosalega mikið. 

Þannig að þetta er einhvers konar jafnvægi. Það hafa komið dagar þar sem ég hugsa að ég ætli ekki að gera neitt með tónlistina en ég fæ svo mikla hvatningu og mikinn stuðning og það hjálpar gríðarlega. Foreldrar mínir eru líka miklir stuðningsmenn, mamma hágrét í útgáfupartýinu og pabbi er örugglega búinn að hlusta hundrað sinnum á plötuna,“ segir Halla brosandi.

Lítið samfélag en mikið listalíf

Foreldrar hennar búa núna í Mosfellsbæ en eftir nám ákvað Halla að flytja aftur á Akranesið.

„Þetta er yndislegt samfélag en auðvitað lítið samfélag þar sem allir þekkja alla. Sambandsslit og heil plata geta alveg hrist svolítið upp í þessu, maður finnur rafmagnið í loftinu og væntanlega spyrst þetta út en það er líka bara allt í góðu, það er partur af því að tilheyra þessu litla samfélagi. 

Akranes er ótrúlega lifandi menningarbær líka, hér er mikið listalíf og mikill meðbyr með fólki sem vill skapa. Það hafa alltaf verið fullt af tækifærum þar.“

Halla elskar listræna andann sem er yfir Akranesi. Vísir/Anton Brink

Að lokum segist Halla stefna á að fara lengra með tónlistina og tekur þetta allt á sínu tempói.

„Nú er ég farin að pæla hvernig mig langar að koma lögunum mínum á svið og það er næsta verkefni. Mig langar að henda í smá sett og fara í smá gír eftir áramót og ég hlakka til að sjá hvert það leiðir mig.“

#hreinustu #mynd #sinni #sársauki #vísir


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262958235d/-sars-auki-i-sinni-hreinustu-mynd-

📰 Aðrar fréttir

Kristrún opin fyrir fleiri NATO-hermönnum á Íslandi en telur fasta viðveru óþarfa
📅 07.11.2026 👁️ 1
Kristrún opin fyrir fleiri NATO-hermönnum á Íslandi en telur fasta viðveru óþarfa
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra er opin fyrir því að fleiri hermenn NATO komi til Íslands í skiptivinnu en telur ekki þörf á fastri bandarískri...
„Hún mun alltaf vera með mér“
📅 07.11.2026 👁️ 2
„Hún mun alltaf vera með mér“
„Hún mun alltaf vera með mér“ Adolf Þór Har­alds­son missti stóru ást­ina í lífi sínu aðeins nítján ára gam­all þegar Hannah Jane Large lést á Krýsu­v...
Svíþjóðardemókratar gefa eftir kröfu um að vera í ríkisstjórn
📅 07.11.2026 👁️ 1
Svíþjóðardemókratar gefa eftir kröfu um að vera í ríkisstjórn
Þjóðernisflokkurinn Svíþjóðardemókratar hefur fallið frá kröfu um ráðherraembætti í nýrri ríkisstjórn í Svíþjóð. Jimmie Åkesson, formaður flokksins, t...
Enn einn maðurinn ætlaði að myrða Trump - Vísir
📅 07.11.2026 👁️ 1
Enn einn maðurinn ætlaði að myrða Trump - Vísir
Fréttaveitan AP greinir frá en þar segir að leyniþjónustumenn hafi nálgast manninn á fimmtudagskvöld. Hann hafi verið talinn hafa hagað sér grunsamleg...
Steinunn og Jóhann fundu leiðina aftur til hvors annars eftir fjögur ár: „Ég hugsaði: Sjáum hvað hann hefur að segja“
📅 07.11.2026 👁️ 1
Steinunn og Jóhann fundu leiðina aftur til hvors annars eftir fjögur ár: „Ég hugsaði: Sjáum hvað hann hefur að segja“
Hver ástarsaga er einstök og þar með talin saga þeirra Steinunnar Óskar Valsdóttur og Jóhanns Helga Sveinssonar. Þau eru gott dæmi um „rétta manneskju...
„Upp­áhalds­leikarinn minn er Jón Jóns­son að leika konur“ - Vísir
📅 07.11.2026 👁️ 1
„Upp­áhalds­leikarinn minn er Jón Jóns­son að leika konur“ - Vísir
Veruleikinn er þó annar hjá sjónvarpsmanninum, uppistandaranum og skemmtikraftinum sem stýrir Kviss á Sýn, heldur spurningakeppnir fyrir fyrirtæki og ...
Lögum um nýja gjaldheimtu í höfnum landsins fylgir engin reglugerð
📅 07.11.2026 👁️ 1
Lögum um nýja gjaldheimtu í höfnum landsins fylgir engin reglugerð
Öll stærstu skip sem koma í íslenskar hafnir greiða úrgangsgjald og förgunargjald samkvæmt gjaldskrá viðkomandi hafnarsjóðs. Það er á þeirra ábyrgð, o...
Woman critical after being rescued from the sea in Costa Adeje
📅 07.11.2026 👁️ 1
Woman critical after being rescued from the sea in Costa Adeje
A woman was taken to hospital in a critical condition yesterday, Friday 6th November, after being pulled from the sea at Playa La Pinta in Costa Adeje...
Ný stefna leysir þá þrettán ára gömlu af hólmi - Vísir
📅 07.11.2026 👁️ 2
Ný stefna leysir þá þrettán ára gömlu af hólmi - Vísir
Í tilkynningu þess efnis á vef Stjórnarráðsins segir að markmið stefnunnar sé að draga úr skaða af völdum áfengis og annarra vímuefna og tryggja fólki...
Hnífjafnar og spennandi þingkosningar
📅 07.11.2026 👁️ 2
Hnífjafnar og spennandi þingkosningar
Það stefnir í hnífjafnar og spennandi þingkosningar á Nýja-Sjálandi í dag. Aðeins nokkur hundruð atkvæði skilja að þingflokk forsætisráðherra og Verka...
Áhrifavaldar og hlaðvarpsstjórnendur áberandi í dómsal
📅 07.11.2026 👁️ 1
Áhrifavaldar og hlaðvarpsstjórnendur áberandi í dómsal
Athygli vakti að áhrifavaldar og hlaðvarpsstjórar sóttu réttarhöld í máli Írisar Helgu Jónatansdóttur, sem sökuð er um umfangsmikið umsáturseinelti ge...
Ökumaður stöðvaður eftir að hafa ekið á tvo ljósastaura
📅 07.11.2026 👁️ 1
Ökumaður stöðvaður eftir að hafa ekið á tvo ljósastaura
Lögregla stöðvaði ökumann eftir að hann ók á ljósastaur, upp á umferðareyju og á annan ljósastaur miðsvæðis í borginni. Ökumaðurinn var vistaður í fan...
Events cancelled and municipal attractions closed in Tenerife due to Storm Bruna
📅 07.11.2026 👁️ 1
Events cancelled and municipal attractions closed in Tenerife due to Storm Bruna
Residents and holidaymakers in Tenerife are being urged to check their plans as Storm Bruna approaches the island, with closures and event suspensions...
Hefur fyrir­gefið bana­manni systur sinnar - Vísir
📅 07.11.2026 👁️ 1
Hefur fyrir­gefið bana­manni systur sinnar - Vísir
Gerða var fimmtán ára unglingur þegar eldri systir hennar, Linda Björk Bjarnadóttir, lést í kappakstursslysi á Hverfisgötu í Reykjavík, í apríl árið 1...
Húðin bráðnaði – aðeins neglurnar héldust á sínum stað
📅 07.11.2026 👁️ 2
Húðin bráðnaði – aðeins neglurnar héldust á sínum stað
Húðin bráðnaði – aðeins neglurnar héldust á sínum stað Hlustaðu 03:50 · Sif −15 +30 1× Heimir Már Pét­urs­son, fram­kvæmda­stjóri þing­flokks Flokks f...
Gerðu á­rásir á nærri Hormússundi - Vísir
📅 07.11.2026 👁️ 2
Gerðu á­rásir á nærri Hormússundi - Vísir
Íranskir miðlar greina frá hljóðum frá tveimur flugskeytum á Suza-svæðinu á eyjunni Qeshm en eyjan er mikilvægur þáttur í olíuflutningaleið um svæðið....
Gerðu á­rásir nærri Hormússundi - Vísir
📅 07.11.2026 👁️ 2
Gerðu á­rásir nærri Hormússundi - Vísir
Íranskir miðlar greina frá sprengjuhljóðum frá tveimur flugskeytum á Suza-svæðinu á eyjunni Qeshm en hún er mikilvægur þáttur í olíuflutningaleið um s...
Víða allhvasst í kvöld og kólnar á morgun
📅 07.11.2026 👁️ 2
Víða allhvasst í kvöld og kólnar á morgun
Búast má við suðvestan átt, strekkingi og rigningu víða um landið. Þurrt verður að mestu austanlands. Víða verður svo hvasst eða allhvasst í kvöld. Hi...
Kólnar í veðri næstu daga - Vísir
📅 07.11.2026 👁️ 3
Kólnar í veðri næstu daga - Vísir
Í hugleiðingum veðurfræðings segir að lægðardrag liggi yfir landinu sem valdi strekkingi og úrkomu víða. Búist er við suðvestanátt á bilinu 10 til 18 ...
Concern over growing illegal settlement close to complexes in south Tenerife
📅 07.11.2026 👁️ 2
Concern over growing illegal settlement close to complexes in south Tenerife
Residents in Los Cristianos are calling for action as an illegal settlement continues to grow on the slopes of Montaña de Guaza, close to residential ...
Ók upp á um­ferðar­eyju og á tvo ljósa­staura - Vísir
📅 07.11.2026 👁️ 1
Ók upp á um­ferðar­eyju og á tvo ljósa­staura - Vísir
Er þetta meðal þeirra 78 mála sem bókið eru í kerfi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Alls eru sex vistaðir í geymslum lögreglu.  Er þetta meðal þeir...
Flugferlar Græn­lands hannaðir í Reykja­vík - Vísir
📅 07.11.2026 👁️ 2
Flugferlar Græn­lands hannaðir í Reykja­vík - Vísir
„Fyrir utan þessi þrjú stóru verkefni hefur Avians séð um flugferlahönnun og flugprófanir á flugvöllum Grænlands og Færeyja í fjöldamörg ár,“ segir In...
Óttar Guðmundsson skrifar: Marilyn og Ragnheiður
📅 07.11.2026 👁️ 2
Óttar Guðmundsson skrifar: Marilyn og Ragnheiður
Mynd Ragnheiður Brynjólfsdóttir biskupsdóttir er ein frægasta
Ragnheiður Sigurðardóttir skrifar: Ég fór til vinnu – ekki til að missa heilsuna
📅 07.11.2026 👁️ 1
Ragnheiður Sigurðardóttir skrifar: Ég fór til vinnu – ekki til að missa heilsuna
Ragnheiður Sigurðardóttir skrifar: Þegar einstaklingur verður fyrir varanlegu heilsutjóni á vinnustað vakna spurningar um ábyrgð, réttlæti og stöðu hi...
Yfir þúsund komu sjóleiðis til El Hierro á einum degi – hundruð flutt til Tenerife
📅 07.11.2026 👁️ 2
Yfir þúsund komu sjóleiðis til El Hierro á einum degi – hundruð flutt til Tenerife
Alls komu 1.003 manns sjóleiðis til El Hierro á Kanaríeyjum föstudaginn 6. nóvember. Um 350 voru flutt frá eyjunni til Tenerife um morguninn og áætlað...
Pope Leo in 'pretty good health' as he starts Latin America tour
📅 07.11.2026 👁️ 1
Pope Leo in 'pretty good health' as he starts Latin America tour
Pope Leo travels to Uruguay just three weeks after having surgery for lung cancer.
Pútín setur á tímabundnar hömlur á Rússa sem búa erlendis
📅 07.11.2026 👁️ 3
Pútín setur á tímabundnar hömlur á Rússa sem búa erlendis
Vladimir Pútín Rússlandsforseti ætlar að setja á tímabundnar hömlur á Rússa sem búa erlendis. Forsetinn undirritaði forsetatilskipun í gær um stofnun ...
Pútín setur tímabundnar hömlur á Rússa sem búa erlendis
📅 07.11.2026 👁️ 2
Pútín setur tímabundnar hömlur á Rússa sem búa erlendis
Vladimir Pútín Rússlandsforseti ætlar að setja á tímabundnar hömlur á Rússa sem búa erlendis. Forsetinn undirritaði forsetatilskipun í gær um stofnun ...
Parliament restoration delays 'frustrating', says Commons Speaker
📅 07.11.2026 👁️ 4
Parliament restoration delays 'frustrating', says Commons Speaker
Sir Lindsay Hoyle urges action after a committee warns it is "crunch time" for the ailing building.
Frétta­tía vikunnar: Lyklar, gler­búr og Inga Sæ­land - Vísir
📅 07.11.2026 👁️ 3
Frétta­tía vikunnar: Lyklar, gler­búr og Inga Sæ­land - Vísir
Láttu á reyna hér fyrir neðan og sjáðu hversu mörg stig þú hefur upp úr krafsinu. Líkt og áður er einungis sæmdin og montrétturinn í verðlaun. Fréttat...
Bandaríkjaher gerði árásir á Qeshm-eyju
📅 07.11.2026 👁️ 4
Bandaríkjaher gerði árásir á Qeshm-eyju
Bandaríkjaher gerði árásir á Qeshm-eyju úti fyrir ströndum Írans í gær. Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í viðtali við fjölmiðla í gær að Íranar h...
Married at First Sight UK: Relief, tears and sadness - how cast reacted to Channel 4 show being axed
📅 07.11.2026 👁️ 4
Married at First Sight UK: Relief, tears and sadness - how cast reacted to Channel 4 show being axed
It was cancelled after a BBC Panorama investigation heard allegations from three former cast members.
Tesla dregur úr framleiðslu á Cybertruck-bílum
📅 07.11.2026 👁️ 4
Tesla dregur úr framleiðslu á Cybertruck-bílum
Dregið verður úr framleiðslu á Cybertruck-bílum í verksmiðju Tesla í Texas um mitt næsta ár. Elon Musk, stofnandi og framkvæmdastjóri Tesla, greindi f...
Texas mayor instructs police to limit cooperation with ICE
📅 07.11.2026 👁️ 4
Texas mayor instructs police to limit cooperation with ICE
The new policy, which comes after a Democratic sweep of the state, will limit the people it will inform the immigration agency about to those who have...
Bandaríkjastjórn býður greiðslur fyrir upplýsingar um kjarnorkuáætlun Írana
📅 07.11.2026 👁️ 4
Bandaríkjastjórn býður greiðslur fyrir upplýsingar um kjarnorkuáætlun Írana
Bandaríkjastjórn býður allt að 20 milljónir dollara í greiðslu og mögulegan flutning til annars lands fyrir upplýsingar um kjarnorkuáætlun Írana.Aðger...
Skepta returns 'to set levels' with his long-awaited sixth album
📅 07.11.2026 👁️ 2
Skepta returns 'to set levels' with his long-awaited sixth album
The grime artist, widely considered to be one of the UK's best, returns with his first album in seven years.
Fyrrum forseti settur í stofufangelsi
📅 07.11.2026 👁️ 4
Fyrrum forseti settur í stofufangelsi
Yfirvöld í Paragvæ settu fyrrum forseta landsins, Santiago Pena, í stofufangelsi í gær. Saksóknarinn Silvia Margarita Gonzalez Vester sagði í viðtali ...
'My mortgage has gone up already': How rising interest rates are hitting people's pockets
📅 07.11.2026 👁️ 1
'My mortgage has gone up already': How rising interest rates are hitting people's pockets
With UK interest rates set to rise, mortgages, credit cards and loans could get more expensive for millions.
Skipulögð brotastarfsemi ein helsta ógnin við vestrænt lýðræði og samfélag
📅 07.11.2026 👁️ 3
Skipulögð brotastarfsemi ein helsta ógnin við vestrænt lýðræði og samfélag
Skipulögð brotastarfsemi þar sem erlend glæpagengi koma mjög við sögu er fyrirferðarmikil í löggæsluáætlun til næstu fimm ára, sem dómsmálaráðuneytið ...
Gladiator II stuntman sues over injuries from on-set explosion
📅 07.11.2026 👁️ 4
Gladiator II stuntman sues over injuries from on-set explosion
Edward Sarsfield says he suffered "excruciating" burns while filming a scene on a burning ship.
Jehovah's Witness rules on blood transfusions have changed, but it's too late for my brother
📅 07.11.2026 👁️ 1
Jehovah's Witness rules on blood transfusions have changed, but it's too late for my brother
Jehovah's Witness leaders relaxed strict rules on blood transfusions, but the change came 23 days too late for Isaac Valdez.
Kennararáð Cornell-háskóla lýsir yfir vantrausti á stjórn skólans
📅 07.11.2026 👁️ 4
Kennararáð Cornell-háskóla lýsir yfir vantrausti á stjórn skólans
Kennararáð Cornell-háskóla í Bandaríkjunum hefur lýst yfir vantrausti á yfirstjórn skólans vegna viðbragða hennar við kynferðisofbeldi innan háskólans...
Paraguay's President Santiago Peña impeached and arrested
📅 07.11.2026 👁️ 4
Paraguay's President Santiago Peña impeached and arrested
Peña was ousted due to a banking crisis which left millions of people unable to access their money.
Paraguay's President Santiago Peña impeached and under house arrest
📅 07.11.2026 👁️ 1
Paraguay's President Santiago Peña impeached and under house arrest
Santiago Peña was ousted due to a banking crisis which left millions of people unable to access their money.
What happens if the internet goes down? BlackSky - the UK's emergency backup plans
📅 07.11.2026 👁️ 3
What happens if the internet goes down? BlackSky - the UK's emergency backup plans
A Black Sky event could leave millions without power, water and communications. So how prepared is the UK?
Kiernan Dewsbury-Hall: England 'disappointment' fuels midfielder's Everton heroics
📅 06.11.2026 👁️ 3
Kiernan Dewsbury-Hall: England 'disappointment' fuels midfielder's Everton heroics
Kiernan Dewsbury-Hall responds to his England omission by scoring a stunning goal to inspire Everton's 3-1 comeback victory over Coventry City.
Trump skiptir um starfsmannastjóra Hvíta hússins
📅 06.11.2026 👁️ 2
Trump skiptir um starfsmannastjóra Hvíta hússins
Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur skipað Stephen Miller starfsmannastjóra Hvíta hússins frá og með mánudeginum. Forsetinn tilkynnti um þetta í færs...
Sam­þykktu van­traust á hendur stjórn­endum Cornell - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 2
Sam­þykktu van­traust á hendur stjórn­endum Cornell - Vísir
Bandarískir miðlar greina frá en konan, sem fer undir nafninu Jane Doe í fjölmiðlum, höfðaði einkamál gegn Cornell og bræðrafélaginu Chi Phi. Málið va...
With Stephen Miller pick, Trump readies for a battle
📅 06.11.2026 👁️ 2
With Stephen Miller pick, Trump readies for a battle
The US president's promotion of Miller, a loyal partisan firebrand to be his new chief of staff sets up likely clashes with Congress.
Nýjar ratsjárstöðvar eiga að greina skip sem gefa ekki upp staðsetningu
📅 06.11.2026 👁️ 4
Nýjar ratsjárstöðvar eiga að greina skip sem gefa ekki upp staðsetningu
Landhelgisgæslan hefur sett upp ratsjárstöðvar á fjórum stöðum sem eiga að efla eftirlit á hafsvæðum nærri landi og fylgjast með skipaumferð sem gefa ...