Bandarískir miðlar greina frá en konan, sem fer undir nafninu Jane Doe í fjölmiðlum, höfðaði einkamál gegn Cornell og bræðrafélaginu Chi Phi. Málið vakti mikla athygli bæði vestanhafs og hérlendis en sjö ungir menn voru sakaðir um að nauðga konunni í sameiningu klukkustundum saman og deila upplýsingum um það á samfélagsmiðlum. Í stefnu einkamálsins kom fram að henni hafi verið byrlað, hún beitt kynferðislegu ofbeldi og hópnauðgað af sjö meðlimum Chi Phi-bræðrafélagsins við Cornell.
Málið hefur kallað fram mótmæli á háskólasvæðinu, gagnrýni kennara á stjórn skólans og neytt stjórnendur háskólans til að endurskoða stefnu sína og viðbrögð við kynferðisofbeldi á háskólasvæðinu.
Auki þrýsting og sendi skýr skilaboð
Vantrauststillagan var samþykkt í atkvæðagreiðslu í dag. Rúm 55 prósent greiddu atkvæði með tillögunni, eða 37 prósent á móti. Tíu fulltrúar sátu hjá í atkvæðagreiðslunni, að því er kemur fram í umfjöllun CNN.
Tillagan er táknræn og gerir það ekki að verkum að Michael Kotlikoff, rektor Cornell-háskóla, né aðrir stjórnendur séu látnir víkja úr starfi. Því er þó haldið fram að tillagan auki þrýsting á stjórnina og sendi skýr skilaboð.
Sjá einnig: Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann
Þeir kennarar sem stóðu að vantrauststillögunni sendu frá sér sameiginlega yfirlýsingu eftir atkvæðagreiðsluna.
„Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir stjórnenda til að þagga niður í okkur hafa kennarar háskóladeilda tekið höndum saman til að lýsa óánægju sinni og krefjast þess að Cornell geri betur. Við tölum máli nemenda okkar, samstarfsfólks, starfsfólks og fyrrverandi nemenda sem hafa hvatt okkur til að draga stjórnendur til ábyrgðar,“ segir í yfirlýsingunni.
Trúnaðarráð háskólans ber fullt traust til Kotlikoff og stjórnar skólans til að taka á kynferðisofbeldi á háskólasvæðinu með yfirveguðum hætti, er haft eftir Anne Meinig Smalling, formanni trúnaðarráðsins, í umfjöllun CNN.
Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar endurspegli hins vegar þá djúpu reiði sem ríki í skólanum og sendi skýr skilaboð.