Rekstur Sjúkrahússins á Akureyri er ósjálfbær eins og hann er í dag og rekstrarvandi þess einn sá mesti í íslenska heilbrigðiskerfinu, að mati forstjóra. Þar stefnir í rúmlega tveggja milljarða króna rekstrarhalla á árinu.
„Fjárlögin eru alltaf svona einu til einu og hálfu einu ári á eftir. Það er auðvitað bara mjög erfitt bara við alla ákvarðanatöku þegar maður er að stýra sjúkrahúsi að horfa síðan á hallann aukast og aukast þegar að þörfin hún eykst líka“, segir Guðjón Hauksson, forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri.
Í minnisblaði vegna fjárlaga undirstrikar forstjórinn þungan rekstur spítalans. Árið 2026 stefnir í að reksturinn fari rúmum 15% fram úr heimildum - sem þýðir halli upp á meira en 2 milljarða króna.
Launakostnaður hefur farið tæplega einum milljarði og sjö hundruð milljónum fram úr fjárlögum og stytting vinnuvikunnar þyngir róðurinn.
„Fyrst og fremst á Sjúkrahúsinu á Akureyri, eins og raunar almennt í heilbrigðisþjónustu í landinu, að þá eru það kjarasamningar sem hafa verið gerðir sem hafa reynst okkur erfiðir og að mínu mati ekki að fullu fjármagnaðir“, segir Guðjón.
Þetta hefur forstjóri Landspítala einnig bent á, þar vantar aðra tvo komma fjóra milljarða til að mæta launaauka á þessu ári.
Á báðum stöðum er verið að skoða viðbótarfjárveitingar. Kostnaðurinn sem ríkið hefur ætlað stofnununum hefur dugað skammt undanfarin ár og SAk tók með sér meira en sex hundruð milljóna mínus frá því í fyrra, inn í þetta ár.
Stjórnendur spítalans ítreka að stöðugt sé rýnt í reksturinn. Miðað við nýlegar úttektir komi hann vel út í samanburði við aðrar stofnanir - en njóti vitanlega ekki sömu stærðarhagkvæmni og Landspítali.
Forstjóri SAk segir að þrátt fyrir viðbótarfjármagn séu líkur á að þau taki með sér mikinn halla inn í næsta ár. Þá neyðist þau til að skerða þjónustu, sem gæti orðið dýrkeypt leið að hallalausum fjárlögum.
„Það er þannig að ef við þurfum að skera hér niður þjónustu þá mun þörfin ekki hverfa. Þörfin flyst þá til og það er mín skoðun að það sé síst ódýrara fyrir íslenska ríkið að fljúga fólki fram og til baka til að fá heilbrigðisþjónustu sem við getum sannarlega vel veitt hér.“