Bjarni Vestmann sendifulltrúi sem starfar við fastanefnd Íslands hjá Atlantshafsbandalaginu, NATO, í Brussel var staddur ásamt eiginkonu sinni í stuttu ferðalagi í Kraká í Póllandi þegar skotárás var framin við torgið þar sem þau voru stödd. Bjarni segir að þau hjónin hafi flúið inn á veitingastaðinn, þar sem þau höfðu sest að snæðingi, utandyra. Kona sem hafi verið um 50 metra frá þeim hjónum hafi verið skotin til bana. Hann segir að þeim hjónum sé brugðið og þótt hann hafi séð ýmislegt í sínum störfum í utanríkisþjónustunni sé það ekkert í líkingu við þetta.
Sendifulltrúi við fastanefnd Íslands hjá NATO var á torginu þar sem skotárásin í Kraká var framin - „Hún hafði orðið fyrir skoti rétt um 50 metra frá okkur“