Fimm hið minnsta voru drepnir og á annan tug særðist í skotárás í Kraká í Póllandi í dag. Lögregla segir árásarmanninn hafa verið handtekinn og fluttan á sjúkrahús.
Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands, sagði lögreglu rannsaka árásina, tilefni hennar og aðstæður. „Ég er upplýstur um stöðuna í Kraká af innanríkisráðherranum eftir þessa hörmulegu skotárás,“ sagði Tusk á samfélagsmiðlinum X.
Fréttin verður uppfærð.