Rannsókn samráðsnefndar fjármálaráðuneytisins á innflutningi kísilmálms frá Kína er enn ekki lokið og óvíst er hvenær bráðabirgðaniðurstöður hennar liggja fyrir.
Enn sé unnið að öflun upplýsinga sem séu nauðsynlegar til að ljúka rannsókninni. Þetta kemur fram í skriflegu svari ráðuneytisins við fyrirspurn fréttastofu.
Höfðu út september til að ljúka rannsókninni
Rúmt ár er síðan slökkt var á kísilmálmframleiðslu PCC á Bakka við Húsavík. Aðeins á annan tug starfsmanna er enn við vinnu í verksmiðjunni en í byrjun síðasta árs voru það nærri 150.
Lokunin var áfall fyrir samfélagið en stjórnendur PCC sögðu hana fyrst og fremst mega rekja til erfiðra markaðsaðstæðna.
Samráðsnefnd fjármálaráðuneytisins hóf rannsókn á innflutningi kísilmálms frá Kína í fyrra, að beiðni PCC, sem sagði kínverskan málm seldan hér á landi á undirboðskjörum.
Ráðuneytið hafði út september til að ljúka rannsókninni og vísa þá kröfu PCC frá eða leggja toll á kínverskan kísilmálm.
Evrópusambandið hóf einnig endurskoðun á innflutningi kínversks kísilmálms til Evrópu í byrjun hausts. Niðurstöður hennar gætu haft áhrif á íslenskan markað í gegnum EES-samninginn.
Ljóst að rannsóknin tekur lengri tíma en áætlað var
Samkvæmt svari ráðuneytisins við fyrirspurn fréttastofu er enn unnið að öflun upplýsinga sem nauðsynlegar eru til að ljúka rannsókninni.
„Eftir því sem rannsókninni hefur miðað áfram hefur hins vegar orðið ljóst að hún mun taka lengri tíma en upphaflega var áætlað,“ segir í svarinu.
Ráðuneytið segir rétt að upphaflega hafi verið gert ráð fyrir að bráðabirgðaniðurstaða rannsóknarinnar lægi fyrir í haust en ljóst sé að það eigi eftir að taka lengri tíma.
„Rannsóknin stendur því enn yfir og á þessari stundu er ekki unnt að segja til um hvenær bráðabirgðaniðurstaða mun liggja fyrir.“
Í samtali við fréttastofu í september sagðist Thomas Salomon stjórnarformaður PCC enn fullviss um að fyrirtækið hefji starfsemi á ný. Hann tók við stjórnartaumunum af Kristínu Önnu Hreinsdóttur, sem lét af störfum sem forstjóri í lok september.