Rannsóknin var kynnt á ráðstefnu Vegagerðarinnar í vikunni. Þar kemur meðal annars fram að meðalhraði ferða á rafskútum hefur aukist úr rúmlega 9 kílómetra hraða árið 2020 í rúmlega 13 kílómetra hraða á þessu ári.
Einnig má sjá, þegar tilefni ferða er skoðað, að notkun rafskúta til eða frá skóla hefur fjórfaldast en mun færri nota hins vegar skúturnar á leið sinni til eða frá veitinga- og skemmtistöðum.
Daði Baldur Ottósson samgönguverkfræðingur segir rafskútur upphaflega hafa verið spennandi valkost og margir hafi freistast til að spara sér leigubílakostnaðinn og hoppað á skútu. Neikvæðasta hlið rafskútanna sé slysatíðni.
„En svo líka held ég bara að það hafi búið að vera náttúrulega í umræðunni að náttúrulega að hafa það lítið til að slasa sig á þessum skútum ef þú ert ekki með alveg fulla vitund og hérna, ég held að það líka hafi bara í raun og veru dregið úr líkum þess að fólk sé að hoppa á rafskútuna í skemmtanalífinu“
Notendur kalla eftir bættum innviðum
Rannsóknin sýnir einnig að dregið hefur úr fjölda þeirra sem vilja nota göngustíga fyrir rafskútuakstur.
„Hún sýndi svolítið að notendur voru að kalla eftir bættum innviðum, betri gangstéttum og svo framvegis og flestir myndu vilja kjósa það að vera á hjólastígum þar sem þú ert aðskilinn frá umferðinni.“
Daði segir innviðina sífellt að verða betri, líka fyrir þá sem nýta sér reiðhjól.
„Þegar maður er að greina gögnin er hægt að sjá hvaða leiðir notendur rafskútu eru að nýta sér, þannig að þar er líka hægt að nota gögnin til að sjá betur hvar vantar innviði byggt á þeim fjölda sem nýtir sér tilteknar leiðir eða tengingar.“
Bílastæðagjöld myndu hvetja nemendur til að nýta sér aðra ferðamáta
Þá voru ferðavenjur framhaldsskólanema sérstaklega kannaðar. Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og EFLA unnu skýrslu fyrr á árinu um álagsdreifingu umferðar þar sem ein af tillögunum var að innleiða gjaldskyld bílastæði við opinberar stofnanir.
Í könnuninni nú telur rúmur helmingur framhaldsskólanema að bílastæðagjöld myndu hafa áhrif á ferðavenjur þeirra. Daði segir að nú sé engin fyrirstaða fyrir nemendur að fara á bíl, önnur en að finna stæði.
„Niðurstöðurnar úr könnuninni sýna svona svolítið svart á hvítu að það að setja á bílastæðagjöld myndi sannarlega vera liður í því að hvetja nemendur til þess að nýta sér aðra ferðamáta heldur en einkabílinn.“
Fáir framhaldsskólanemendur nýta sér reiðhjól til að koma sér í skólann, andstætt við hlutfall í grunnskóla. Hlutfallið aukist síðan á ný þegar fólk fer á vinnumarkaðinn en af einhverjum ástæðum virðist sem það sé ekki vinsælt að koma á hjóli í framhaldsskóla.
„Staðsetning skiptir máli og maður mætti ætla að í skólum sem eru miðsvæðis væri hlutfallið hærra. En við erum samt að sjá í raun og veru að þvert yfir þá er þetta bara í kringum eitt prósent og enginn skóli með áberandi hærra hlutfall frekar en annar,“ segir Daði.