Flætt hefur inn í þúsundir tjalda á Gaza í mikilli úrkomu í dag. Meirihluti íbúa þar missti heimili sín í árásum Ísraelshers og hefst því við í tjöldum. Vegna veðursins getur fólk ekki lengur skýlt sér þar og hefst við undir berum himni.
Al Jazeera hefur eftir talsmanni almannavarna á Gaza að fyrirburar og eldri borgarar, sem búi í tjöldum, séu í mestri lífshættu. Á fréttamyndum frá Gaza-borg, Khan Younis og Deir al-Balah má sjá fjölskyldur í ökkladjúpum pollum í tjöldum sínum, dýnur og teppi gegnblaut og börn berfætt í leðju- og skólppollum. Þá telja almannavarnir Gaza að um ein milljón manna verði í hættu þegar veturinn gengur í garð.