Fjallað verður um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar og rætt við Sif Traustadóttur dýralækni. Sjálf segist hún hafa komið með sömu athugasemdir aftur og aftur þegar hún starfaði sem eftirlitsdýralæknir.
Formaður velferðarráðs Reykjavíkurborgar gagnrýnir málflutning minnihlutans um uppsagnir innan borgarinnar. Borgin endurnýjaði í vikunni þjónustusamning við ríkið um samræmda móttöku flóttafólks og mun ráða á ný starfsfólk sem sagt hefur verið upp.
Enn á eftir að skera úr um úrslit í kosningum til öldungadeildar Bandaríkjaþings í tveimur ríkjum. Þá hefur forseti Paragvæ verið settur í stofufangelsi og ákærður fyrir embættisbrot eftir hrun banka þar í landi.
Mun færri nota rafskútur í ferðum til og frá skemmtistöðum en áður samkvæmt nýrri ferðavenjukönnun. Samgönguverkfræðingur segir niðurstöður úr könnuninni sýna að setja eigi á bílastæðagjöld við framhaldsskóla landsins.
Í íþróttafréttum verður fjallað um 5. umferð í Bónus-deild karla sem lýkur í dag, hnefaleikakeppni á Ásvöllum í gær sem og enska boltann sem heldur áfram að rúlla.
Allt þetta og meira til í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu tólf.