Vladimir Pútín Rússlandsforseti ætlar að setja á tímabundnar hömlur á Rússa sem búa erlendis. Forsetinn undirritaði forsetatilskipun í gær um stofnun nefndar sem er ætlað að framfylgja nýjum lögum um þessar takmarkanir.
Danska ríkisútvarpið segir að dómsmálaráðherrann Konstantin Chuychenko stýri nefndinni og í henni verði einnig fulltrúar frá rússneskum ríkisstofnunum. Samkvæmt lögum sem Pútin undirritaði þann 4. ágúst verður hægt að setja ýmsar hömlur á Rússa sem eru búsettir erlendis og hafa verið sakfelldir fyrir dómi að þeim fjarstöddum eða sæta rannsókn.
Rússneski stjórnarandstöðufjölmiðillinn Dozdh segir að þessar hömlur geti falið í sér að þessum einstaklingum verði bannað að fá vegabréf, koma undan eigum sínum, skrá ökutæki, undirrita skjöl rafrænt, nota heimabanka eða opinberar rússneskar vefsíður.
Í gær birti rússneska dómsmálaráðuneytið lista með nöfnum 22 rússneskra ríkisborgara erlendis sem lögin hafa áhrif á.
Meðal þeirra eru blaðamaðurinn Yuri Dud, rithöfundurinn Dmitry Bykov, fyrrverandi þingmaðurinn Alexander Nevzorov, viðskiptamaðurinn Mikhail Khodorkovsky og bloggarinn og útvarpsmaðurinn Michael Naki.