„Fyrir utan þessi þrjú stóru verkefni hefur Avians séð um flugferlahönnun og flugprófanir á flugvöllum Grænlands og Færeyja í fjöldamörg ár,“ segir Ingólfur Magnússon, deildarstjóri hjá Avians, sem áður hét Isavia ANS.
„Þessi vinna fer fram hér á skrifstofum Avians á Reykjavíkurflugvelli. Það eru ekki margir sem starfa við þetta. Við erum tveir hér heima, auk þess sem einn er í þjálfun.
Svo erum við með tvo erlenda flugferlahönnuði sem búa í sínu heimalandi en koma hingað reglulega. Annar þeirra verður hér í tvær vikur frá og með næsta mánudegi.“
Flugferlahönnun, sem á ensku kallast „instrument flight procedure design“ snýst að sögn Ingólfs um að hanna aðflugs- og brottflugsferla sem leiða loftför örugglega að og frá flugbraut í blindflugi. Hönnunin byggir á alþjóðlegum kröfum Alþjóðaflugmálastofnunarinnar ICAO.
„Kröfurnar eiga að tryggja nægan aðskilnað frá landslagi og mannvirkjum og taka mið af getu loftfara og leiðsögubúnaðar,“ segir Ingólfur.
Flugprófanamenn Avians taka út flugferlana á flugmælingavélinni TF-FMS áður en þeir eru formlega gefnir út til flugmanna. Áhorfendur Sýnar kynntust flugprófunum á Grænlandi í þessari sjónvarpsfrétt í fyrra:
„Flugprófanirnar sjálfar eru lokahnykkurinn á ferlinu áður en ferlarnir eru sendir til samþykkis hjá viðkomandi yfirvaldi og síðan teknir í notkun. Tilgangur flugprófunar á flugferlum er í raun að staðfesta að það séu engar hindranir sem ekki var vitað um. Einnig til að kanna fljúganleika ferilsins og vinnuálag um borð,“ segir Ingólfur.
Hann segir hönnun flugferla, frá upphafi til enda, yfirleitt taka marga mánuði. Hver hönnunarskýrsla geti verið yfir eitthundrað blaðsíður, auk ýmissa fylgiskjala.
Þannig hafi fyrir hinn nýja Nuuk-flugvöll, sem opnaður var fyrir tveimur árum, verið gerð alls fimmtán ný aðflugs- og brottflugskort. Þau voru bæði fyrir hefðbundna svokallaða ILS aðflugs- og brottflugsferla, en einnig fyrir svokalla RNP-flugferla, sem byggi á hæfisbundinni leiðsögu.
Fyrir Qaqortoq-flugvöll hafi verið gerð alls níu aðflugs- og brottflugskort. Sá flugvöllur var opnaður í apríl í vor og leysti hann Narsarsuaq af hólmi sem aðalflugvöllur Suður-Grænlands.
Fyrir nýjasta flugvöllinn í Ilulissat, sem opnaður var í síðustu viku, voru gerð alls tólf ný aðflugs- og brottflugskort. Þar þurfti að taka tillit til bæði krefjandi landslags og mögulegra borgarísjaka í nágrenni vallarins.
Hér má sjá fjögurra mínútna myndskeið frá flugmælingunum í Ilulissat tekið úr stjórnklefa TF-FMS:
Avians sá einnig um hönnun nýs loftrýmis og kögunarhæða í kringum Nuuk í samstarfi við flugumferðarstjóra hjá Naviair í Danmörku. Auk þess voru uppfærðar leiðarflugsleiðir til og frá Nuuk og Qaqortoq.
Fjallað var um flugprófanir Íslendinga á Grænlandi í þætti Flugþjóðarinnar á Sýn fyrr á árinu. Þáttaröðina má nálgast á streymisveitu Sýnar. Hér er átta mínútna kafli um flugið á Grænlandi: