Þjóðernisflokkurinn Svíþjóðardemókratar hefur fallið frá kröfu um ráðherraembætti í nýrri ríkisstjórn í Svíþjóð. Jimmie Åkesson, formaður flokksins, tilkynnti þetta á blaðamannafundi í gær. Hann sagði þetta gert til að greiða leiðina fyrir borgaralega ríkisstjórn.
Þetta er mikil stefnubreyting fyrir flokkinn sem hefur hingað til sagt að annað hvort fái hann sæti í ríkisstjórn í fyrsta sinn eða greiði atkvæði gegn meirihlutanum ella.
Möguleiki á hægri ríkisstjórn aftur
Þetta getur fært borgaralegu blokkinni möguleika á að mynda nýja ríkisstjórn undir forystu Ulfs Kristersson formanns Moderaterne og núverandi forsætisráðherra. Borgaralega blokkin sigraði í kosningum 2022 og myndaði svokallað Tidö-samstarf sem var minnihlutastjórn Moderaterne, Frjálslynda flokksins og Kristilegra demókrata. Svíþjóðardemókratar vörðu stjórnina falli.
„Ég hef komist að þeirri niðurstöðu að þetta sé góð leið fyrir Svíþjóðardemókrata og þegar til lengri tíma er litið góð leið fyrir Svíþjóð,“ sagði Åkesson á fundinum. Flokkurinn væri reiðubúinn að sætta sig við Ulf Kristersson sem forsætisráðherra í borgaralegri fjögurra flokka ríkisstjórn sem flokkur hans væri ekki hluti af.
Átta vikur eru frá kosningum og illa hefur gengið að mynda ríkisstjórn. Rauðgræna blokkin, með Jafnaðarmannaflokkinn í fararbroddi undir forystu Magdalenu Anderson, vann nauman sigur á borgaralegu blokkinni með 176 þingmenn gegn 173. Djúpstæðar erjur Vinstriflokksins og Miðflokksins í rauðgrænu blokkinni valda því að ekki tekst að ná saman á vinstri og miðjuvængnum.
Miðflokkur tilkynnti í kosningabaráttunni að hann færi hvorki í ríkisstjórn með Vinstriflokknum né Svíþjóðardemókrötum. Þessir flokkar eru lengst til vinstri og hægri í sænskri pólitík.
Åkesson segir við SVT að hann hafi sent Kristersson skýr skilaboð. „Ef rauðar línur Miðflokksins koma í veg fyrir að blágul borgaraleg ríkisstjórn verði mynduð, eru Svíþjóðardemókratar reiðubúnir að sætta sig við fjögurra flokka borgaralega ríkisstjórn og að vera í stjórnarandstöðu næstu fjögur ár.“
Miðflokkurinn var áður í borgaralegu blokkinni en hefur verið í stjórnarandstöðu með rauðgrænu blokkinni undanfarin ár vegna andstöðu Miðflokksins við Svíþjóðardemókrata.
Nú gæti dregið til tíðinda ef borgarlegu blokkinni tekst að sannfæra Miðflokkinn um að færa sig yfir aftur og sitja í fjögurra flokka ríkisstjórn á hægri vængnum undir forystu Ulfs Kristersson.
Hann fékk umboðið á þriðjudag þegar þingið hafnaði Elisabeth Thand Ringqvist formanni Miðflokksins sem forsætisráðherra. Þetta var önnur tilraun til að kjósa um forsætisráðherra því Magdalenu Anderson var einnig hafnað um miðjan október. Nú eru aðeins tvær forsætisráðherrakosningar eftir. Takist ekki að samþykkja nýjan forsætisráðherra í atkvæðagreiðslu á þingi og mynda ríkisstjórn verður efnt til aukakosninga. Síðast gerðist það árið 1958.