„Hún mun alltaf vera með mér“
Adolf Þór Haraldsson missti stóru ástina í lífi sínu aðeins nítján ára gamall þegar Hannah Jane Large lést á Krýsuvíkurvegi. Hún hafði skrifað ritgerð um ást þeirra, sem hann segir lýsa hvernig honum líður núna.
„Þetta var bara ekki rétti tíminn, en við vissum alltaf að við værum að fara að byrja aftur saman,“ segir Adolf Þór Haraldsson, sem er aldrei kallaður annað en Dolli, um Hönnuh Jane Large, sem lést langt fyrir aldur fram þegar bíll sem hún var farþegi í lenti utan vegar á Krýsuvíkurvegi eftir hraðakstur.
Adolf og Hannah urðu kærustupar haustið 2025 eftir að hafa kynnst á Spáni. Þau hættu saman vegna flókinna aðstæðna í janúar eftir að hafa verið saman í tæpt hálft ár. Hannah Jane var stóra ástin í lífi Dolla, sem er nítján ára gamall fótboltastrákur frá Njarðvík. Hannah Jane skrifaði ritgerð um ást þeirra fyrir lokaprófin sín í Írlandi og fékk hæstu einkunn fyrir. Ritgerðin nefndist „Ást og missir“.
Þannig var ást þeirra í meinum þegar Hannah Jane lést …