Landhelgisgæslan hefur sett upp ratsjárstöðvar á fjórum stöðum sem eiga að efla eftirlit á hafsvæðum nærri landi og fylgjast með skipaumferð sem gefa ekki upp staðsetningu. Ratsjárnar eiga að auka siglingaöryggi og efla eftirlit með landamærum og fjarskiptaköplum.
„Við erum að reyna að sjá þessi skip sem eru að reyna að koma til landsins óséð,“ segir Auðunn Friðrik Kristinsson, framkvæmdastjóri hjá Landhelgisgæslunni.
Hann segir slíka skipaumferð ekki algenga en það gerist samt nokkrum sinnum á ári. Á veturna er sjaldgæft að skip séu á ferðinni sem sendi ekki staðsetningarmerki. Á sumrin séu hins vegar oftar á ferðinni lítil skemmtiferðaskip eða skútur sem láti ekki vita af sér.
„En svo eru skip að koma sem eru rannsóknarskip erlendra ríkja sem eru ekki með kveikt á búnaðinum,“ segir Auðunn. Markmiðið sé að hafa skýra stöðumynd af hafinu kringum landið svo hægt sé að vita á öllum stundum hverjir séu við landið og hvað þau séu að gera.
Í sumar vöktu ferðir Bandero, skips Paul Watson-samtakanna, athygli fyrir að gefa ekki upp sjálfvirka staðsetningu. Auðunn segir ratsjárnar nýju geta fylgst með slíkum ferðum á því svæði sem ratsjárnar dekka.
Drægnin er um 40-60 sjómílur eða 74-111 kílómetrar á haf út. Þá verða stöðvarnar búnar myndavélum.
Fyrstu stöðvarnar hafa verið settar upp á Stórhöfða í Vestmannaeyjum, Sauðanesi á Vestfjörðum, Gunnólfsvíkurfjalli á Langanesi og Borgarhafnarfjalli nálægt Hornafirði. Ef þær reynast vel stendur til að setja upp fleiri. Kaupin eru styrkt af landamærasjóði Evrópusambandsins.
Ratsjárnar þjóna þjóðar- og siglingaöryggi á mismunandi hátt. Við Vestmannaeyjar liggja fjarskiptastrengir á tiltölulega grunnu vatni frá landinu. Ratsjárstöðin á Stórhöfða gæti séð til þess að skip komist ekki óséð að þeim.
Við ratsjána á Vestfjörðum er mikil umferð strandveiðibáta á sumrin. Á veturna getur hún fylgst með hafís. Í dag vaktar Landhelgisgæslan hafís með flugi. Það myndi því spara þeim bæði flugtíma og fé að kortleggja ísinn á þennan hátt.
Ratsjáin á Gunnólfsvíkurfjalli stendur hátt og fylgist með umferð úr norðaustri.
„Á Suðausturlandinu er svolítil traffík, sérstaklega á sumrin, skútur að koma upp undir landið sem sýna okkur ekki staðsetninguna sína. Þessi skip viljum við sjá með tilliti til smygls og annarra áhættuþátta,“ segir Auðunn.