Ung móðir í New York kastaði upp af geðshræringu þegar hún heyrði hversu vægan fangelsisdóm maðurinn sem stakk hana 22 sinnum með hnífi hafði hlotið. Konan var hætt komin eftir árásina, sem átti sér stað á heimili hennar á meðan þriggja ára dóttir hennar var í næsta herbergi.Kaitlynn Berman, 23 ára, var viðstödd réttarhöld í Bronx á miðvikudag þegar Christopher Joseph, jafnaldri hennar, var dæmdur í átta og hálfs árs fangelsi fyrir hrottalega árás á hana í mars 2025.
Kastaði upp þegar hún heyrði dóminn yfir manninum sem stakk hana 22 sinnum