Władysław Kosiniak-Kamysz varnarmálaráðherra hóf blaðamannafundinn á því að lýsa atvikinu sem „hryðjuverkaárás“ og greindi frá því að lögreglumaður sem stöðvaði hinn grunaða væri enn í lífshættu.
Greint hefur verið frá því að þrír hinna látnu séu pólskir ríkisborgarar og eitt fórnarlamb sé frá Bretlandi. Enn eigi eftir að bera kennsl á hina tvo. Þetta kemur fram í umfjöllun BBC og AP-fréttaveitunnar.
Donald Tusk forsætisráðherra sagði að lík tveggja kvenna og eins karlmanns hefðu fundist á heimili hins 25 ára karlmanns. Líklega væri um nána fjölskyldumeðlimi hans að ræða og lögregla framkvæmi nú frekari leit á heimili hans og fjölskyldunnar.
„Það gætu verið ansi mörg vopn, ansi margar byssur, í þessu húsi,“ sagði Tusk um húsleitina. Einnig væri kannað hvort hætta stafaði af bíl hins grunaða og þá einkum sprengihætta.
Árásarmaðurinn ók milli staða á torginu og hóf skothríð á hverjum stað með sjálfvirku vopni, að sögn yfirvalda. Tusk kvaðst sannfærður um það að lögregla muni fljótlega geta handtekið „mögulega stuðningsmenn gerandans“.
Lýsa honum sem öfgaþjóðernissinna
Marcin Kierwiński innanríkisráðherra sagði á blaðamannafundi að lögregla hefði „skotið og yfirbugað“ hinn grunaða. Hann liggi enn alvarlega slasaður á sjúkrahúsi og gangist nú undir sína aðra aðgerð. Ráðherrann bætti við að engin ástæða væri til að ætla að árásarmennirnir hafi verið fleiri en einn.
Kierwiński sagði að maðurinn hefði „mjög róttækar“ og „öfgaþjóðernissinnaðar“ skoðanir, að því er fram kemur í frétt AP.
„Allt bendir til þess að hann hafi verið heillaður af hugmyndafræði fjarhægrisins,“ sagði ráðherrann. Mörg skotvopn hafi fundist í bíl hans og leit standi enn yfir.
Með „hervopn“ í fórum sínum
„Hervopn“ voru notuð í skotárásinni, að sögn lögreglu, þar sem sextán særðust. Þeirra á meðal er árásarmaðurinn sjálfur, tveir lögreglumenn og fimm erlendir ríkisborgarar.
Lögreglan í Varsjá, höfuðborg Póllands, hefur gripið til öryggisráðstafana í kjölfar árásarinnar. Til að mynda hafa vegatálmanir verið settar upp til að takmarka flæði að einni vinsælustu götu höfuðborgarinnar. Varsjá er í um 300 kílómetra fjarlægð frá Kraká.
Andy Burnham, forsætisráðherra Bretlands, segist vera harmi sleginn eftir skotárásina en búið er að greina frá því að breskur ríkisborgari hafi látið lífið í henni líkt og áður segir.
„Hugur minn er hjá fjölskyldum þeirra sem létu lífið, öllum þeim sem særðust og öllum sem þetta tilgangslausa ofbeldi hefur snert,“ sagði hann.
„Bretland stendur með pólsku þjóðinni.“