Sex hið minnsta voru drepnir og á annan tug særðir í skotárás í miðbæ borgarinnar Krakár í Póllandi í dag. Lögregla skaut árásarmanninn sem var svo fluttur á sjúkrahús.
Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands, sagði lögreglu rannsaka árásina, tilefni hennar og aðstæður. „Ég er upplýstur um stöðuna í Kraká af innanríkisráðherranum eftir þessa hörmulegu skotárás,“ sagði Tusk á samfélagsmiðlinum X. Forsætisráðherrann er á leið til Krakár vegna árásarinnar.
Árásarmaðurinn keyrði inn á aðaltorg borgarinnar og byrjaði að skjóta á fólk sem var þar. Lögregla telur að hann hafi verið einn að verki.
Árásin var gerð í gömlum hluta miðborgarinnar sem er vinsæll viðkomustaður bæði borgarbúa og ferðamanna.
Pólski fjölmiðillinn Interia hefur eftir manni sem varð vitni að árásinni að hann hafi séð árásarmanninn skjóta með byssu út um glugga, bílstjóramegin á bíl.
Borgaraþjónusta utanríkisráðuneytis Íslands hvetur Íslendinga í Kraká til að láta aðstandendur vita af sér eða gera grein fyrir sér á samfélagsmiðlum. Ef aðstoðar er þörf er fólk hvatt til að hafa samband við borgaraþjónustuna í síma +354 545 0112. Ráðuneytið ráðleggur Íslendingum á vettvangi að virða lokanir og tilmæli yfirvalda og fylgjast með pólskum fjölmiðlum.
Fréttin hefur verið uppfærð. Í fyrstu tilkynntu yfirvöld að fimm hafi verið drepnir í árásinni. Síðar var tilkynnt að sex