Þetta segir Bjarni Vestmann sem var staddur við Aðaltorgið í Kraká þegar maður hóf skothríð þar síðdegis í dag með þeim afleiðingum að sex létust.
Skyndilega hafi þau hjónin og aðrir sem sátu að snæðingi fyrir utan sama veitingastað flúið inn á staðinn til að leita skjóls. Fljótlega hafi Bjarni svo litið aftur út ásamt fleirum.
„Ég sá að það lá einhver á jörðinni. Það var byrjað að hlúa að manneskjunni en hún hafði það ekki af, hún dó. Svo voru fleiri þarna sem höfðu verið skotnir og það hafði verið sérstök skotárás á verslunina Zara sem er þarna rétt hjá torginu. Þar voru margir sem höfðu farið illa. Þannig að þetta var hið hræðilegasta mál,“ segir Bjarni í samtali við Vísi.
„Það var fullt af fólki sem safnaðist á torgið en svo rýmdi lögreglan torgið algjörlega og lokaði því. Það er enn þá lokað og fólk fer ekkert inn á það. Þetta er aðalmarkaðstorgið í gamla borgarhlutanum,“ bætir hann við en svæðið er einn vinsælasti áfangastaður ferðamanna í borginni.
Fluttur særður á sjúkrahús
Sex eru sagðir látnir og fimmtán særðir eftir árásina í Kraká en þeirra á meðal er lögreglumaður. Byssumaðurinn særðist í átökum við lögreglu og var fluttur á sjúkrahús. Árásarmaðurinn er sagður vera pólskur ríkisborgari og hafa verið einn að verki.
Borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins hvetur Íslendinga í Kraká til að láta aðstandendur vita eða gera grein fyrir sér á samfélagsmiðlum. Þá er fólk hvatt til þess að hafa samband við neyðarnúmer borgaraþjónustu í síma +354 545-0-112 ef aðstoðar er þörf.
Hvernig er sálarlífið eftir svona atvik?
„Það er nú svona alveg þokkalega gott. Það er nú aðallega að það er mikið af fólki sem varð fyrir árásinni, glötuðu lífinu, er sært og þeirra aðstandendur sem maður hugsar um,“ segir Bjarni.
Hann starfar í fastanefnd Íslands gagnvart Atlantshafsbandalaginu (NATO) í Brussel í Belgíu þar sem hann er búsettur. Hann er í helgarferð með eiginkonu sinni Rakel Árnadóttur og eru þau að heimsækja pólsku borgina í fyrsta sinn.
„Leigubílstjórinn sem keyrði okkur frá flugvellinum talaði einmitt mikið um það hvað þetta væri friðsæl borg. Hún er það. Þetta var bara algjör undantekning. Þetta var hræðileg undantekning.“
Fréttin hefur verið uppfærð.