Ungheill – ungmennaráð Barnaheilla stóð fyrir samtalsfundi í dag þar sem rætt var um þátttöku ungmenna og samráð við stjórnvöld. Hugmyndin með fundinum var að tala um vandamálin sem ungmenni hafa rekist á þegar opinberir aðilar kalla eftir skoðunum þeirra, svokallað sýndarsamráð – og finna lausnirnar til að bæta úr þeim.
Mia Ðuric, sem er í stjórn Ungheilla, tók þátt í umræðum á fundinum. Fulltrúar Ungheilla hafa setið nokkra nefndarfundi á Alþingi í vetur og þar er að finna dæmi um sýndarsamráð, að sögn Miu.
„Við komum punktum á framfæri og segjum hvað okkur finnst en svo endar fundurinn og tíminn líður, kannski nokkrir mánuðir, og ekkert er búið að breytast.“
Finnst ekki tekið mark á þeim
Einnig eru dæmi um að unga fólkinu finnist ekki tekið mark á því. „Það er mikilvægast þegar það er mál sem tengist unga fólkinu, eins og símabannið í grunnskólum eða einkunnamálið,“ segir Mia.
„Þegar þetta er eitthvað sem tengist okkur og mun hafa áhrif á okkur ætti að vera rætt við okkur“
Símafrí tók gildi í grunnskólum í haust og nýtt einkunnakerfi í 10. bekk verður innleitt í vor, Mia segir dæmi um sýndarsamráð þegar kemur að báðum þessum málum.
Lausnin er einföld, að sögn Miu. „Að það sé raunverulega hlustað á okkur. En ekki bara hlustað og sagt já já en á endanum ekkert gert í því. Að þau taki mark á því sem við segjum og útkoman sé sýnileg.“
„Fyrir þau er þetta bara vinnan þeirra og gott fyrir þau að fá ungmenni á fundina sína og taka mynd með okkur. En við erum ekki að fá neitt borgað fyrir þetta, við erum að gera þetta af því að við brennum fyrir þessu, við viljum í alvörunni að málin séu löguð,“ segir Mia.