Stefán Einar Stefánsson blaðamaður og þáttastjórnandi hjá Morgunblaðinu vill sem minnst gera úr því að blaðið hafi með frétt um erlenda ríkisborgara sem þiggja fjárhagsaðstoð, frá Reykjavíkurborg, birt mynd af palestínskri konu sem er í fullri vinnu á leikskóla og tilheyrir því augljóslega ekki þeim hópi sem fréttin fjallar um. Heldur Stefán áfram upprifjun sinni á dómsmálum sem snúa að ofbeldi palestínkskra karlmanna hér á landi og segir það skipta miklu meira máli en það að blaðið hafi birt myndina.
Stefán Einar gefur ekki tommu eftir vegna röngu myndbirtingarinnar - „Kebabelskandi góða fólkið hafi fyrst og fremst ógurlegar áhyggjur“