Mótmælendur komu saman við rússneska sendiráðið í Dóminíska lýðveldinu á dögunum til að krefjast þess að landar þeirra fái að snúa heim af víglínunni í Úkraínu.
Raquel Santana, systir eins mannanna, sagði við fjölmiðla að ástvinir sakni mannanna sárt og berjist því fyrir því að fá þá til baka. „Og þó svo þeir séu dóminískir fáum
við ekki stuðning frá stjórnvöldum.“
Fólkið vill fá mennina senda til baka á grundvelli mannréttinda. Þeir hafi talið sig vera að fara til Rússlands í vinnu, ekki í herinn eða á víglínuna í Úkraínu. „Við förum líka fram á að fá á hreint hverjar aðstæður þeirra eru þarna. Þó svo þeir hafi farið sjálfviljugir
ættu ættingjarnir að vita um kjörin og mögulegan ávinning og mögulegt
tjón sem þeir gætu orðið fyrir. Kosti og galla ber að draga skýrt fram. Dóminísk yfirvöld ættu að sjá til þess,“ segir Carlos Sánchez, hjá mannréttindasamtökunum Mannréttindaráð Dóminíska lýðveldisins.
Mótmælendur báðu rússneska sendiherrann í landinu um aðstoð við að fá mennina til baka.
Talið er að 20.000 til 30.000 erlendir hermenn séu í Rússlandsher frá ríkjum eins og Srí Lanka, Nepal, Jemen, Tógó, Marokkó, Egyptalandi, Kamerún, Kenýa, Kúbu, Sierra Leone og Sómalíu.
Rússnesk stjórnvöld forðast að ráðast í allsherjarherkvaðningu og auglýsa því eftir mönnum á netinu í fátækum ríkjum. Dæmi eru um að þeim hafi verið boðin vinna við öryggisgæslu eða akstur, en verið sendir á víglínuna og þeim hótað ofbeldi reyni þeir að flýja. Eins eru dæmi um að menn hafi klárað samning sinn við Rússlandsher en samt ekki fengið að fara.
Talið er að um 1.000 Keníamenn hafi verið sendir á víglínuna. Stjórnvöld þar hafa beðið Rússa að hætta skráningum þeirra í herinn. Þá óskuðu stjórnvöld í Kirgistan eftir því á dögunum að einum af þeirra ríkisborgurum yrði hleypt burt af víglínunni.