Björgunarsveitir hafa verið kallaðar út vegna þess að bíll fór í á á Snæfellsnesi. Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur einnig verið kölluð út að beiðni Lögreglunnar á Vesturlandi.Vísir greinir frá þessu.Bíllinn fór út í ánna Kleifá á sunnanverðu Snæfellsnesi. Upplýsingar um fjölda slasaðra liggja ekki fyrir. Viðbragðsaðilar eru á vettvangi.
Bíll fór í Kleifá á Snæfellsnesi