Ríkisstjórnin hyggst hefja gjaldtökuna á þremur fjölsóttum stöðum í Bláskógabyggð og verður gjaldið 4.500 krónur á háannatíma en 3.000 krónur utan hans.
Hanna Katrín segir markmiðið ekki vera að fækka ferðamönnum á stöðunum heldur láta erlenda gesti taka beinan þátt í uppbyggingu innviða við náttúruperlur í eigu þjóðarinnar.
Í viðtali við Pál Magnússon á Sprengisandi var hún spurð hvort ekki væri óraunhæft að gera ráð fyrir því að gjaldið hefði engin áhrif á aðsókn, lík og fyrirséð er að sambærilegt gjald muni hafa á aðsókn skemmtiferðaskipa.
Hanna Katrín sagði stjórnvöld hafa farið yfir greiðsluvilja ferðamanna, látið vinna greiningar og borið gjaldtökuna saman við sambærilega staði erlendis.
„Þegar upp er staðið, það sem ræður úrslitum, eru viðbrögð ferðamanna. Verði þau á þann hátt að það sé neikvætt þá bara er þetta endurskoðað,“ sagði hún.
Segir gjaldið hóflegt
Hanna Katrín segir gjaldið hóflegt í alþjóðlegum samanburði og nefnir meðal annars Miklagljúfur í Bandaríkjunum, þar sem erlendir gestir greiði mun hærra gjald til viðbótar við bílastæðagjöld.
Hún segir þróunina víða erlendis þá að ferðamenn greiði sérstaklega fyrir aðgang að viðkvæmum náttúruperlum og menningarminjum og taki þannig beinan þátt í uppbyggingu og vernd þeirra.
Ráðherrann segir stjórnvöld vilja dreifa ferðamönnum betur bæði um landið og árið, en það þýði ekki að markmiðið sé að fækka gestum á fjölsóttustu stöðunum.
„Við sjáum fram á, vonandi, enn frekari vöxt ferðamanna,“ sagði Hanna Katrín.
Æskilegt sé að uppbygging innviða annars staðar á landinu haldi í við þann vöxt svo ferðamenn dreifist frekar vestur, norður og austur.
Telur gjaldið standast EES-samninginn
Sveitarfélög í uppsveitum Árnessýslu hafa látið vinna lögfræðiálit þar sem því er haldið fram að gjaldtakan kunni að brjóta gegn reglum Evrópska efnahagssvæðisins vegna þess að erlendir ferðamenn verði rukkaðir en fólk með skattalega heimilisfesti hér á landi undanþegið. Þessu hafnar Hanna Katrín.
Hún segir stjórnvöld hafa aflað eigin lögfræðiálits og ráðfært sig við sérfræðinga í EES-rétti, þar á meðal Dóru Sif Tynes.
„Að okkar mati er útfærsla gjaldsins eins og hún birtist í frumvarpinu, það er að segja að þeir sem eru með skattalega heimilisfesti hér eða greiði skatta hér séu undanskildir, að þetta rúmist innan samningsins um Evrópska efnahagssvæðið,“ sagði hún.
Hún segir stjórnvöld hafa dæmi annars staðar frá sem styðji þá túlkun og telur mikilvægt að láta reyna á gjaldtökuna.
Byrja á fjölsóttustu stöðunum
Áform ríkisstjórnarinnar byggja á þeirri stefnu að innheimta í ríkari mæli auðlindagjöld þegar atvinnugreinar byggjast upp á nýtingu náttúruauðlinda þjóðarinnar.
Ferðaþjónustan hafi hingað til ekki greitt slíkt auðlindagjald með sambærilegum hætti og til dæmis sjávarútvegurinn. Hanna Katrín sagðist vel geta skilið að útgerðinni hafi þótt það ósanngjarnt að greiða slík gjöld ein. Þetta sé því framlag ferðaþjónustunnar.
Upphaflega hafi verið rætt um gjaldtöku á fleiri ferðamannastöðum víða um land en niðurstaðan orðið sú að byrja í smærri skrefum á fjölsóttustu stöðunum.
„Þegar við þrengjum þetta niður, byrjum á einhverjum örfáum stöðum, þá augljóslega förum við í þá fjölsóttustu,“ sagði Hanna Katrín.