Dýraverndarsamband Íslands segir að myndefnið sem tekið var í innbroti í svínabú Stjörnugríss og hefur verið í dreifingu varpi ljósi á alvarleg kerfisbundin vandamál sem skapist þegar framleiðslusjónarmið fá meira vægi en velferð dýra.
„Brýnt er að áherslum í svínahaldi verði breytt þannig að velferð svína verði í forgangi en ekki hámörkun framleiðslu. DÍS kallar jafnframt eftir auknu gagnsæi í svínahaldi. Óásættanlegt er að starfsemin sé svo lokuð að almenningur fái fyrst innsýn í aðbúnað dýranna þegar einstaklingur grípur til þess ráðs að afla myndefnis með þessum hætti,“ segir í tilkynningu.
Þar kemur fram að það sé mat sambandsins að búrekstur sem þoli ekki dagsins ljós sé rekinn á hæpnum forsendum og að almenningur eigi rétt á að vita við hvaða aðstæður dýr, sem alin eru til matvælaframleiðslu, lifa og hvernig komið sé fram við þau. Kallar sambandið eftir því að opinbert eftirlit með slíkri framleiðslu verði eflt.
„Það er óviðunandi að stjórnvöld hafi árum saman veitt undanþágur frá reglum sem eiga að vernda svín. Þrátt fyrir að halaklippingar séu bannaðar hefur svínabændum verið heimilt að klippa hala af nokkurra daga gömlum grísum án deyfingar. Í stað þess að bæta aðstæður dýranna eru þau limlest til að þjóna kerfi sem byggir á hámarksframleiðslu við sem minnstan tilkostnað. Það er með öllu óásættanlegt. Dýr sem eru notuð í atvinnurekstri eiga ekki að þjást.“
Velferð dýra eigi ávallt að vera í forgangi.
„Dýraverndarsamband Íslands telur að tími undanþága og fresta í svínahaldi sé liðinn. Svínabændur hafa fengið viðbótarfrest til 1. janúar 2028 til að uppfylla kröfur reglugerðar um velferð svína. Í ljósi þess sem nú hefur komið fram telur sambandið fullt tilefni til að sá frestur verði endurskoðaður. Að lágmarki verður að liggja fyrir að viðbótarfresturinn sé endanlegur og að engar frekari undanþágur verði veittar.“