Í ákæru á hendur manninum, sem þingfest var fyrir luktum dyrum þann 28. október síðastliðinn, segir að maðurinn hafi haft önnur kynferðismök en samræði við konuna án hennar samþykkis, þegar hún dvaldi á ótilgreindri deild á spítalanum.
Hann hafi sett fingur sinn inn í leggöng hennar, káfað innanklæða á brjóstum, geirvörtum og maga hennar og nuddað kynfæri hennar. Hann hafi notfært sér að konan gat ekki spornað við verknaðinum sökum lyfjaáhrifa sem hún var undir.
Þess er krafist að maðurinn verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar auk þess sem konan krefur hann um þrjár milljónir króna í miskabætur.