Tveir þekktir veitingastaðir í Reykjavík, Hamborgarafabrikkan á Höfðatorgi og Hlöllabátar á Bíldshöfða, hafa verið innsiglaðir af lögreglu að beiðni Skattsins.Vísir greinir frá þessu í dag og hefur lögreglan staðfest að báðum stöðunum hafi verið lokað að beiðni skattyfirvalda. Ekki liggur fyrir hvað varð til þess að óskað var eftir lokununum.
Tveir þekktir veitingastaðir innsiglaðir í Reykjavík