Örgjörvar gagnavera úreldas – almenningur borgar skuldirnar

Júlíus Valsson skrifar:
Framtíðin blasir við þegar teikningar af nýju gagnaveri liggja á borðinu. Þar verða til tekjur og raforkuviðskipti um ókomin ár, eða svo er að minnsta kosti okkur sagt. Síðan bætast við vindmyllur á hverjum rokrassi og virkjanir í hverri sprænu, sem eiga að sjá vélasölunum fyrir orku. Allt gengur þetta upp, svo lengi sem framtíðin hagar sér samkvæmt Excel-skjalinu.
Tölvutæknin hefur hins vegar aldrei skuldbundið sig til eins eða neins. Hún heldur bara sínu striki.
Fjárfestingar í gagnaverum og orkumannvirkjum vegna þeirra geta reynst dýrkeyptar þegar tæknibreytingar kollvarpa öllum forsendum um orkuþörf eða samkeppnishæfni. Mannvirki sem eiga að skila arði á áratugum eru þá reist á áætlunum um tölvutækni sem getur gjörbreyst á fáeinum árum. Jafnvel strax á morgun.
Meiri vinnsla með minni orku
Google segir Ironwood-örgjörvann skila um tvöfaldri reiknigetu á hvert vatt miðað við fyrri kynslóð, þ.e. Trillium. Raforkunotkun heils gagnavers helmingast þó ekki við það, því önnur kerfi þurfa líka sitt. Talan sýnir engu að síður hversu hratt orkuþörf tiltekinna útreikninga getur breyst.
Fyrir íslenska raforkusala skiptir þetta miklu. Geti viðskiptavinurinn unnið sömu verkefni með minni raforku verður salan mun minni en gert var ráð fyrir. Gagnaverið bætir þá afkomu sína á sama tíma og tekjuforsendur virkjunarinnar veikjast. Hagsmunir þessara aðila fara því ekki sjálfkrafa saman.
Eitt gagnaver á Ásbrú; 120 megavött, 40 vindmyllur
Hugsum okkur nýtt gagnaver á Ásbrú sem tekur stöðugt 120 megavött. Ársnotkun þess er um 1,05 teravattstundir, og til þess þarf um fjörutíu 250 metra háar vindmyllur. Yrði hægt að vinna sömu verkefni með helmingi minni orku lækkaði aflþörfin í 60 megavött og ársnotkunin í um 0,53 teravattstundir. Við óbreytt einingarverð helminguðust tekjur af seldri orku.
Þetta er reiknidæmi fremur en spá um einstakt gagnaver. Samningsbundin lágmarkskaup og greiðslur fyrir frátekið afl geta varið tekjur raforkusalans. Þess vegna skipta samningarnir meira máli en hátíðlegar yfirlýsingar við fyrstu skóflustunguna.
Ljós, skammtar og næsta kynslóð örgjörva
Ironwood er aðeins byrjunin. Nvidia kynnti á þessu ári Rubin-kynslóðina og heldur því fram að hún skili tífaldri afköstum á hvert vatt miðað við Blackwell, kynslóðina á undan, en þær tölur eiga óháðar mælingar enn eftir að staðfesta. Lengra úti við sjóndeildarhringinn eru ljósörgjörvar, sem reikna með ljóseindum í stað rafeinda og mynda þar af leiðandi mun minni hita. Þýska fyrirtækið Q.ANT áætlar allt að þrjátíufalda orkunýtni fyrir tiltekin gervigreindarverkefni, breska Lumai talar um allt að 90 prósenta minni orkunotkun og háskólar í Sydney, Flórída og við MIT hafa kynnt frumgerðir fyrr á árinu. Skammtatölvur eru af öðrum toga en þær leysa afmörkuð verkefni sem hefðbundnar tölvur ráða illa við og þurfa kælingu niður undir alkul. IBM stefnir að því að sýna fram á raunverulega yfirburði skammtatölvu fyrir lok þessa árs og vélar sem leiðrétta eigin villur árið 2029, og gagnaverafyrirtæki á borð við Digital Realty og Equinix eru þegar farin að koma skammtavélum fyrir við hlið hefðbundinna örgjörva. Ekkert af þessu knýr gagnaver í dag í neinum mæli. En sá sem reisir virkjun og vindmyllur til næstu fjörutíu ára þarf að gera ráð fyrir að eitthvað af þessu rætist.
Heimsspá er engin íslensk tekjutrygging
Betri orkunýtni getur líka leitt til þess að gagnaver tvöfaldi vinnsluna og noti jafnmikla orku og áður. Vaxandi eftirspurn getur vegið þyngra en tækniframfarirnar. Alþjóðaorkumálastofnunin áætlar að raforkunotkun gagnavera í heiminum aukist úr um 485 teravattstundum árið 2025 í um 950 árið 2030. Ekki er gáfulegt að líta á heimsspá sem tryggingu fyrir tekjum af íslenskri raforkuvirkjunum. Vöxturinn getur orðið annars staðar, og tiltekið gagnaver getur misst viðskipti þótt greinin í heild stækki.
Sama varúð á við um fjárfestingu í gagnaverinu sjálfu. Nýr og hagkvæmari búnaður veikir samkeppnisstöðu þess eldri og kallar á kostnaðarsama endurnýjun. Húsið stendur áfram þótt fjárhagslegar forsendur rekstrarins bresti.
Hver borgar ef eftirspurnin bregst?
Vindmyllur og virkjanir verða ekki tæknilega úreltar þótt nýr örgjörvi komi á markað. A.m.k. ekki strax. Fjárfestingin getur samt orðið óhagkvæm ef hún var byggð á raforkusölu sem skilar sér ekki. Lánin þarf áfram að greiða og viðhaldið hverfur ekki þótt viðskiptavinurinn þurfi færri kílóvattstundir.
Áður en ráðist er í slíkar framkvæmdir þarf að reikna með að afkoman þ.e. að salan verði minni en grunnáætlun gerir ráð fyrir. Einnig þarf að sýna fram á hvort aðrir kaupendur geti tekið við orkunni og á hvaða verði. Hugsanlegur kaupandi einhvern tíma síðar er veik trygging fyrir skuldum sem falla í gjalddaga núna.
Beri opinber orkufyrirtæki áhættuna fylgir mistökunum minni arður til samfélagsins. Þá þarf að liggja fyrir, áður en framkvæmdir hefjast, hver ber kostnað af vannýttum flutningsmannvirkjum.
Betra er kapp með forsjá
Tækniframfarir eru góðar fréttir fyrir tölvugeirann enn afar slæmar fyrir þann sem reisti of dýr mannvirki á röngum forsendum. Íslensk náttúra og fjárhagur almennings eiga skilið vandlegra mat en einungis vonina um að raforkuhungrið vari að eilífu.
Örgjörvinn verður úreltur á morgun. Skuldabréfið ekki, því það heldur gjalddaganum.