Rúmlega 1200 hafa skrifað undir lista til að mótmæla hugmyndum um uppbyggingu vindorkuvers á Hólaheiði við Hnotastein í Norðurþingi. Franska fyrirtækið Qair vill reisa þrjátíu 200 metra háar vindmyllur sem geta framleitt um 216 megavött af raforku. Sveitarstjórn Norðurþings vill að þessi virkjunarkostur verði færður úr biðflokki í nýtingarflokk.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sveitarfélagsins sagði starfi sínu lausu í síðustu viku vegna ágreinings um vindorkuverið og vinnubrögð sveitarstjórnarinnar. Sveitarstjóri Norðurþings sagði að allt í kringum umsögn um vindorkuverið hefði verið unnið faglega og gaf lítið fyrir gagnrýnina. Málið er í umsagnarferli til 18. nóvember. Rætt var við Þorgerði Maríu Þorbjarnardóttur, formann Landverndar, og Finn Beck, framkvæmdastjóra Samorku, í Vikulokunum á laugardag og talið barst meðal annars að stöðu mála í Norðurþingi.
Villandi að bygging vindorkuvera sé afturkræf
Þorgerður María segir að ferlið í kringum vindorkuverkefni kljúfi samfélög. „Við erum einmitt með rammaáætlun til þess að setja ekki allar sveitarstjórnir landsins í þessa stöðu. Núna er rammaáætlun farin að spyrja sveitarstjórnirnar: Getið þið tekið afstöðu til þessa verkefnis? Við ætlum að nota ykkar afstöðu í okkar mati. Þetta klýfur samfélög. Við sjáum það þarna,“ segir hún.
„Ég held að þau vindorkuverkefni sem eru til mats einhvers staðar í skipulagsferli – þau eru mjög mörg – og hvert og eitt vindorkuverkefni getur haft þessi áhrif á samfélög. Þarna er maður í vinnu sem bara blöskrar hvernig farið er að við þetta. Þarna sér maður samfélag þar sem er augljóslega verið að kljúfa samfélagið í afstöðu um verkefni sem er ekki komið lengra en þetta.“
Þorgerður hafnar því að bygging vindorkuverka sé afturkræf framkvæmd. „Inni á svæðum þar sem er votlendi, þar þarf að byggja vegi og steypa gífurlega mikið undir hverja og eina vindtúrbínu,“ segir hún. „100 prósent afturkræfni er kannski helst á sjónrænu áhrifunum. Vindorkuver hafa líka áhrif á fuglalíf og geta þá haft varanleg áhrif á fuglastofna ef það eru mikil afföll af þeim. Þetta er ekki alveg að öllu leyti afturkræft. Ég held að það sé mjög villandi að tala um vindorkuna þannig.“
Besta leiðin að sveitarstjórnir móti afstöðu
Finnur Beck, framkvæmdastjóri Samorku, segist aðspurður binda miklar vonir við að meiri sátt skapist innan samfélaga um verkefni tengd vindorku. „Reynslan sýnir okkur að almenningur, og skoðanakannanir sýna oftast bara góðan stuðning við verkefni sem eru komin á koppinn.“ Meiri styrr standi um verkefni við undirbúning. „Ég merki bara mjög mikilvæga breytingu í þessum vindorkumálum og þá vil ég hrósa sveitarstjórnum sem hafa virkilega tekið á málum og mótað sér afstöðu.“
„Það er besta leiðin sem við getum séð, að lýðræðisleg stjórnvöld, kjörin í hverju sveitarfélagi, móti sér skoðun og móti afstöðu fyrir sitt sveitarfélag. Það er mjög mikilvægt,“ segir Finnur. „Það sem hefur auðvitað breyst með vindorkunni er að sveitarfélög sem áður höfðu ekki orkuöflunarmöguleika innan sinna marka, eru ekki með vatnsauðlindir eða jarðvarmaauðlindir eru nú með gríðarleg tækifæri á sviði vindorkunýtingar,“ segir hann.
„Það er bara mjög mikilvægt að draga fram hvað það þýðir ef þessi verkefni koma, það eru störf, það eru tekjur til sveitarfélaganna, tekjur til ríkisins. Síðan er það auðvitað kjörinna fulltrúa á þessum stöðum að taka ákvörðun. Það er alla vega besta leiðin sem ég sé. Það á ekki að ráðast af því hvort það séu læti hjá einum eða tveimur ræðumönnum á fundi,“ segir Finnur.
Nánar var rætt við Þorgerði Maríu Þorbjarnardóttur, formann Landverndar, og Finn Beck, framkvæmdastjóra Samorku, í Vikulokunum á samtengdum Rásum 1 og 2.