Hamborgarafabrikkan á Höfðatorgi hefur verið innsigluð að beiðni Skattsins. Vísir greinir frá.
Ásmundur Rúnar Gylfason, aðstoðaryfirlögregluþjónn á höfuðborgarsvæðinu, staðfestir í samtali við fréttastofu að lögregla hafi aðstoðað Skattinn við að innsigla staðinn fyrir hádegi í dag. Hann vill ekki tjá sig frekar um málið.
„Lokað vegna bilunar. Opnum innan skamms,“ segir á miða fyrir utan Hamborgarafabrikkuna, sem hefur verið settur yfir innsigli frá Skattinum.
Snorri Olsen ríkisskattstjóri vill ekki staðfesta að staðnum hafi verið lokað. Hann segir trúnað ríkja um aðgerðir Skattsins.
Lögregla innsiglaði einnig Hlöllabáta á Bíldshöfða að beiðni Skattsins í morgun. Mbl.is greindi fyrst frá. Grétar Stefánsson aðalvarðstjóri staðfestir þetta einnig við fréttastofu.
Fréttin hefur verið uppfærð.