Matarleifar af höfuðborgarsvæðinu eru unnar í metan og Moltu í Gaju. Bæjarráð Mosfellsbæjar tók fyrir skýrslu Sorpu um stöðu lyktarvarna í Álfsnesi í síðustu viku en í skýrslunni er einnig birt verkefnaáætlun næstu mánaða. Í skýrslunni er rakið hvernig bilanir hafi ítrekað truflað vinnsluna með þeim afleiðingum að moltan hafi ekki náð að þroskast sem skyldi og af henni leggi meiri lykt. Lyktin frá útblæstri stöðvarinnar hafi sömuleiðis orðið sterkari.
Í skýrslunni rekur Sorpa að þessi vandi Gaju skýri stóran hluta kvartana um lykt frá Álfsnesi í sumar og í haust. Vegna þessara bilana þurfi að endurnýja búnað fyrr en gert var ráð fyrir í viðhaldsáætlunum stöðvarinnar.
Kallað eftir lokun á íbúafundi
Á íbúafundi í Hlégarði 20. október kölluðu nokkrir fundargesta eftir því að starfsemi Gaju yrði hætt.
„Við héldum hérna góðan íbúafund með Sorpu og það kom alveg skýrt fram svona hversu langþreyttir íbúar okkar eru á þessari lyktarmengun sem kemur frá Álfsnesi. Það bárust ansi margar tilkynningar í sumar og svona oftar en ekki þegar að veðrið var gott og fólk kannski úti við,“ segir Hilmar Gunnarsson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar, í samtali við fréttastofu.
„Einhvern tímann verður nóg, nóg“
Hann segir Mosfellsbæ binda vonir við að tímasett áætlun Sorpu um útbætur skili árangri til frambúðar. Þá hafi verkefnastjórn tekið aftur til starfa sem hefur það verkefni að fylgja málinu eftir.
„Þar munum við halda Sorpu vel við efnið og vonumst sannarlega eftir að ástandið batni,“ segir Hilmar.
Bæjarráð Mosfellsbæjar hefur farið fram á að Sorpa sýni fram á mælanlegan árangur og grípi strax til frekari aðgerða ef áætlunin dugar ekki til að draga nægilega vel úr lyktinni. Hilmar segir bæjaryfirvöld reiðubúin að gefa nýju fólki hjá Sorpu tækifæri til að ráða bót á vandanum.
„En einhvern tímann verður nóg, nóg. Og ef þetta tekst ekki núna þá hugsa ég að það þurfi að fara að grípa til einhverra annarra aðgerða,“ segir Hilmar.
Áætla 407 milljónir í aðgerðir
Sorpa áætlar að úrbæturnar á Gaju muni kosta 407 milljónir króna. 331 milljóni fari í endurnýjun sía, breytingar á loftræstingu og moltuvinnslu og ósonbúnaði. 45 milljónir fari í breytingar á rekstri stöðvarinnar, en þar á meðal er aukinn starfsmannakostnaður, færanleg tæki og erlend ráðgjöf. Þá fara 31 milljón króna í bætta gassöfnun, nýjan gasbrennara og þrjá úðara til að draga úr lykt. Áætlun er tímasett og nær september á næsta ári.
Kostnaðurinn við að reisa Gaju var rúmir 5,4 milljarðar króna og starfsleyfi hennar tók gildi í október árið 2020. Stöðin var sögð marka byltingu í umhverfismálum og tæknin sem stöðin byggir á sú besta sem fáanleg er.
Lyktarmengun ætti að vera í lágmarki því moltuvinnslan færi fram innandyra. Síur sem áttu að hreinsa útblásturinn áttu að duga til lyktarvarna og var einnig nefnt að nota óson sem leið til að ná fram frekari hreinsun.
Moltuvinnslan stöðvaðist ári frá gangsetningu
Í júlí árið 2021 hafði Umhverfisstofnun borist kvartanir vegna lyktar en þá hafði molta verið notuð sem yfirlag á urðunarstaðnum í Álfsnesi. Í framhaldinu var verklagi breytt með því að hylja motluna betur með jarðvegi til að draga úr lykt.
Í ágúst árið 2021 fannst mygla í límtrésbitum í lofti stöðvarinnar. Moltuvinnsla lá niðri frá þeim mánuði vegna myglunnar og fleiri ástæðna en gasvinnslan hélt áfram.
Moltuvinnslan lá svo enn niðri árið 2022 en söfnun matarleifa á höfuðborgarsvæðinu hófst aftur um mitt ár 2023 og fyrsta moltan var afhent almenningi árið 2024.Í ársskýrslu Sorpu fyrir árið 2025 var rekstur Gaju talinn stöðugur. 2,3 tonn af moltu höfðu verið framleidd það ár og 650 þúsund rúmmetrar af metani.
Í svari til umhverfis- og skipulagsráðs árið 2022 taldi Sorpa að áætlaður kostnaður vegna galla, málaferla, viðgerðar og endurbóta væri um 60 milljónir króna.