Sérstakir erindrekar Donalds Trump, sem hafa komið að viðræðunum, fara til Rússlands á fund Vladimírs Pútín á morgun og hitta í kjölfarið Vólódímír Selenskí í Írlandi.
Fyrir þessi tveggja daga fundarhöld voru væntingar um hverju yrði áorkað ekki miklar. Jared Kushner, tengdasonur og sérstakur erindreki Trumps, sagði eftir að fundinum lauk í dag að hann vonaðist til þess að koma á fundi milli Pútíns og Selenskís en sagði að það gæti reynst erfitt og myndi taka tíma.
Jared Kushner on Zelensky-Putin meeting and how long deals take: When we did the Abraham Accords, it took three and a half years. We did the USMCA, that took two and a half years. The Gaza deal took a year. It's really only the leaders that can make those final decisions. We are pushing a boulder uphill. This is a very, very hard conflict.
— Clash Report (@clashreport) November 11, 2026
Heimta nýtt öryggisfyrirkomulag, eftir að hafa brotið gegn þeim gömlu
Vladimir Medinsky, sem leiddi rússnesku sendinefndina, sagði í samtali við rússneska miðla eftir fundarhöldin að þau hefðu að miklu leyti snúist um fyrirkomulag öryggismála í allri Evrópu. Hann sagði að átökin í Úkraínu, sem hófust þegar Rússar gerðu innrás í landið, sýndu að núverandi fyrirkomulag virkaði ekki sem skyldi.
Sjá einnig: Boðar nýtt samkomulag um „gervalla Evrópu“ við Rússa
Hann sagði umfangsmiklar breytingar þurfa og að Rússar hefðu ítrekað reynt að vekja athygli á því að þetta þyrfti að laga.
Enn fremur sagði Medinsky að þetta nýja fyrirkomulag þyrfti að vera sanngjarnt fyrir alla og koma ekki niður á einstaka ríkjum.
Evrópskir erindrekar hafa á dögunum bent á að margskonar stofnanir og samþykktir hafi verið ætlað að tryggja frið í Evrópu. Rússar hafi ítrekað grafið undan þeim og brotið gegn þeim á undanförnum árum.
Sjá einnig: Evrópa efins um óljóst samkomulag Trumps
Medinsky skammaðist einnig út í ríki Evrópu og gaf til kynna, eins og Rússar hafa ítrekað gert, að þar væri ekki vilji til að koma á friði. Hann hvatti ráðamenn í Evrópu til að læra af þeim Witkoff og Kushner og sýna friðarvilja, almenna skynsemi og horfa á hlutina af raunsæi.
Sjá einnig: Segir Rússa ýkja landvinninga sína
Hann kvartaði yfir því að ráðamenn í Evrópu væru að valda mannfalli meðal óbreyttra borgara í Úkraínu með því að styðja Úkraínumenn með fjármagni og hergögnum.
Sjá einnig: Vörpuðu þriggja tonna sprengju á óbreytta borgara
Erindrekinn hélt því einnig fram að evrópsk dagblöð gætu vel búið áfram í ímynduðum heimi en að „hverri tommu af rússnesku landi“ yrði skilað með einum hætti eða öðrum.
Hér að neðan má sjá tvö textuð myndbönd af ummælum Medinskys.
🥴 Medinsky is on a roll: He suggested that European representatives who came to Abu Dhabi should meet up as tourists and chat among themselves in the lobby of some local hotel While he’s busy handling the big-boy Realpolitik.
— NEXTA (@nexta_tv) November 11, 2026
Vilja Austur-Evrópu úr NATO
Heimildarmenn AP-fréttaveitunnar úr bandarískri stjórnsýslu segja að Rússar hafi ekki viljað að evrópskir erindrekar tækju beinan þátt í viðræðunum. Þeir sátu á hliðarlínunum og ræddu reglulega við úkraínska erindreka og bandaríska.
Rússar hafa á undanförnum árum varið miklu púðri í að reka fleyga milli Evrópu og Bandaríkjanna. Meðal annars með því að halda því fram við Trump og embættismenn hans að það séu ráðamenn í Evrópu sem standi í vegi friðar í Úkraínu.
Þessir heimildarmenn AP segja einnig að hvorki Rússar né Úkraínumenn hafi viljað láta af kröfum sínum hvað varðar öryggisráðstafanir til framtíðar.
Kröfur Rússa fyrir innrásina í Úkraínu, sem virðast enn vera kröfur þeirra, sneru að því að ríkjum Austur-Evrópu yrði vísað úr NATO.
Blaðamenn RBC í Úkraínu segja að rússneska sendinefndin hafi í Abu Dhabi krafist þess að NATO fjarlægði herafla og hergögn frá þeim löndum sem gengu til liðs við bandalagið eftir árið 1997.
Slíkt er í takt við kröfur Rússa fyrir stríðið en þá kröfðust þeir að NATO hörfaði frá ríkjum sem gengu til liðs við bandalagið eftir 1991. Hvort sem það er 1991 eða 1997 er um sömu ríkin að ræða.
Það eru Pólland og öll önnur ríki Austur-Evrópu, sem myndu falla í þann flokk. Tékkland, Ungverjaland, Búlgaría, Eistland, Lettland, Litáen, Rúmenía, Slóvakía, Albanía, Króatía, Svartfjallaland, Norður-Makedónía og einnig nýjustu aðildarríkin tvö; Finnland og Svíþjóð.
Rustem Umerov, sem leiddi úkraínsku sendinefndina, segir að helsta niðurstaða fundarhaldanna séu áðurnefnd fangaskipti. Verið sé að ljúka skipulagingu á þeim.
Hann segir að árangur hafi náðst í viðræðunum en enn sé gjáin milli stríðandi fylkinga breið. Erfið vinna sé framundan.
We have concluded two days of negotiations in the United Arab Emirates. The main result is that we reached an agreement on a large-scale POW exchange. We are now working to finalise the details and further practical realisation. Bringing our people home remains one of our top priorities. We are doing everything possible to ensure that every Ukrainian returns from captivity as soon as possible. In the trilateral Ukraine–US–Russia format, we discussed achieving peace and Ukraine’s post-war reconstruction. The first step — to end the war and ensure security guarantees for Ukraine. Over these two days, the parties were able to present their positions directly. Significant differences remain. There is still a great deal of difficult work ahead, but there are opportunities to continue the negotiation process. I thank the United States for its active role in organising and conducting the negotiations. Special thanks to @SEPeaceMissions Steve Witkoff and @jaredkushner for their personal involvement. I am grateful to the United Arab Emirates for its hospitality and support for the negotiations, as well as to our European partners — the United Kingdom, France, Germany, Italy, and representatives of NATO and the European Commission — for their joint work in Abu Dhabi.
— Rustem Umerov (@rustem_umerov) November 11, 2026
Vilja einnig land sem þeir stjórna ekki
Þá krefjast Rússar einnig þess að fá landsvæði í austurhluta Úkraínu sem þeir hafa ekki getað tekið með hervaldi og að setja ýmsar takmarkanir á herafla Úkraínu til framtíðar.
Sjá einnig: Með sömu óásættanlegu kröfurnar
Það eru kröfur sem Úkraínumenn hafa hingað til hafnað og þá meðal annars vegna þess að þær myndu gera Úkraínu mun berskjaldaðri fyrir nýrri innrás seinna meir.
Úkraínumenn vilja annaðhvort bindandi skilyrði um að önnur ríki Evrópu og Bandaríkin komi þeim til beinnar aðstoðar ef ný innrás yrði gerð, eða fjárhagslega aðstoð við að halda uppi umfangsmiklum herafla til langs tíma.
Vladimír Pútín hélt í upphafi mánaðarins ávarp á öryggisráðstefnu í Moskvu. Þá fór hann hörðum orðum um ráðamenn í Evrópu og aðra leiðtoga Vesturlanda, sem hann sagði bera alla ábyrgðina á stöðu samskiptanna þeirra á milli.
Þá varði hann töluverðum tíma í ræðu sinni í að syrgja fall Sovétríkjanna sálugu.
Hann sakaði ráðamenn í Evrópu um að ætla sér í stríð við Rússland á komandi árum en hélt því fram að Rússar hefðu engan áhuga á að ráðast á önnur ríki. Í sama mund talaði hann um það að NATO væri búið að hreiðra um sig á „sögulegum svæðum“ Rússa.
Virðist sem hann hafi þar átt við Austur-Evrópu.