Mörður lést eftir áralanga baráttu við krabbamein. Foreldrar Marðar voru Árni Björnsson og Vilborg Harðardóttir sem lést árið 2002. Eftirlifandi eiginkona hans er Linda Vilhjálmsdóttir, skáld og sjúkraliði. Dóttir hans er Ölrún Marðardóttir og átti hann þrjú barnabörn og þrjú barnabarnabörn.
Mörður kom víða við, hann lét til sín taka á fjölmiðlum og sat í stjórn RÚV og átti sæti í siðanefnd Blaðamannafélags Íslands. Hann kom að gerð orðabóka og var mikilvirkur í rökræðu um íslenska tungu.
Hann átti sæti í stjórn Siðmenntar, hann var umhverfisverndarsinni og var einstaklega lifandi í umræðu um hvað eina eins og til að mynda má sjá á ýmsum skoðanapistlum sem hann til að mynda birti á Vísi. Þessir eiginleikar hans bergmála víða í orðum þeirra sem nú minnast hans.
Mörður var lengi álitsgjafi í sjónvarpi og í klippunni að neðan má sjá hann fara yfir það helsta í stjórnmálunum árið 2009.
Stundaði nokkurs konar rókokó-rökræður
Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur segir Mörð hafa verið vin sinn og samferðarmann í fjölmörg ár: „á Þjóðviljanum, í Máli og menningu, í badmintoni, söngkvartett og seinna í Samfylkingunni. Hann var tilfinningaríkur, fróður og með afbrigðum orðhagur og ritfær, frábær fræðimaður eins og Passíusálmaútgáfan hans vitnar um, nákvæmur og hugkvæmur, vinnusamur og fullur eldmóðs.“
Guðmundur Andri segir Mörð hafa verið góðan félaga. Þeir hafi oftlega þráttað um hvaðeina yfir kaffibolla eða bjórglasi.
„Hann hafði unun af því að spinna langar setningar með ótal innskotssetningum en þó þannig að öllu væri haldið til haga – um síðir – stundaði nokkurs konar rókokó-rökræður, þar sem það að skjóta inn orði gat næstum jafngilt því að skemma góða kadensu í klarínettukonsert eftir Mozart.“
Þegar Guðmundur Andri rataði sjálfur á þing reyndist Mörður honum hollráður, ekki síst eftir að hann flaug nýkjörinn beint til Helsinki þar sem hann og Linda Vilhjálmsdóttir, eftirlifandi eiginkona Marðar, voru tilnefnd til Norðurlandaverðlauna. Guðmundur Andri settist þegar á skólabekk hjá Merði sem setti hann inn í launhelgar starfsins af örlæti og fjöri.
„Fjöri, það er einmitt orðið um hann í minningunni: hann var fullur af lífsfjöri í þess orðs bestu merkingu, naut þess að gleðjast með glöðum á góðum degi – hafði í ríkum mæli í sér lífsnautnina frjóu. Og maður átti marga góða daga með Merði sem nú hefur verið rifinn frá okkur.“
Gagnrýninn prinsippmaður
Fjölmargir félagar Marðar úr Samfylkingunni rita kveðju á Facebook, svo sem þau systkini Helga Vala lögmaður og Skúli borgarfulltrúi Helgabörn.
„Mörður var einn heilsteyptasti maður sem ég hef unnið með í stjórnmálunum, mikill umhverfisverndarsinni og leiðtogi í þeim málaflokki um árabil, eldheitur jafnaðarmaður, gagnrýninn prinsippmaður og skarpur, vandvirkur með afbrigðum. Það er mikil eftirsjá að Merði en eftir hann liggja góð verk og minningar um gegnheilan félaga sem var fylginn sér og lét ekki sitt eftir liggja þegar þurfti að taka vandasama slagi,“ ritar Skúli.
Helga Vala segir góðan félaga nú horfinn í sumarlandið. „Hann var góður ráðgjafi, unnandi íslenskunnar, eldheitur jafnréttis- og mannréttindasinni sem birtist ekki síst í baráttu hans fyrir jafnrétti kynslóðanna þegar hann talaði fyrir náttúruvernd og umhverfismálum.“
Helga Vala segir þá Mörð hafa borið ábyrgð á því að hún lét segjast í annarri tilraun haustið 2017 að taka sæti á lista Samfylkingar fyrir óvæntar þingkosningar, öðru sinni á einu ári.
„Við tengdumst í eldmóði fyrir betra samfélagi og hann var óhræddur við að gagnrýna eigið fólk ef honum þótti það vera að fara út af sporinu.“
Glöggur og vandaður maður
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, rektor við Háskólann á Bifröst, segir góðan félaga fallinn frá og það gerir einnig Oddný Harðardóttir, fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar. Hún segir nú margar minningar gera vart við sig, þau hafi ekki alltaf verið sammála en það sé líka í góðu lagi.
„Hann var mér mjög góður ráðgjafi, ekki síst í umhverfis- og loftslagsmálum. Þegar ég var iðnaðarráðherra í aðdraganda þess að gengið var frá rammaáætlun til þingsins vorið 2012 reyndist hann mér sannarlega vel.
Ég minnist margra símtala sem gjarnan stóðu frá því að ég lagði af stað frá ráðuneytinu þar til komið var heim í Garðinn. Síðan þá, ef ég hef verið í vafa um eitthvað eða þurft á brýningu að halda í þeim málaflokki, hef ég haft samband við Mörð. Síðast skrifaðist ég á við hann 29. október eftir að ég hafði frétt af versnandi veikindum hans.“
Mörður sat lengi í siðanefnd Blaðamannafélags Íslands og Þór Jónsson blaðamaður kemur inn á það þegar hann nú minnist Marðar:
„Tvennt úr jóreyk og hófasparki liðins tíma: Fyrir löngu fann Mörður Árnason hjá sér þörf til að atyrða mig fyrir eitthvað sem ég hafði skrifað í dagblað og honum fannst óvandað. Ég tók mark á því. Þannig hófust í raun kynni okkar. Síðar sat hann í siðanefnd BÍ og sá í gegnum tilraunir glæpahunda til að koma höggi á mig gegnum nefndina vegna frétta af kúgun og ofbeldisverkum þeirra. Ég er þakklátur honum fyrir hvort tveggja og finnst það lýsa mannkostum hans vel. Mörður var glöggur og vandaður maður.“
Mikill ljómandi maður hann Mörður
Sigurður Hólm Gunnarsson segir að leiðir þeirra Marðar hafi legið reglulega saman, þeir hafi verið samherjar í pólitík, deilt lífsskoðunum og starfað um hríð saman í stjórn Siðmenntar.
„Mörður var klár, skemmtilegur og hlýr maður. Það var alltaf gott að rekast á hann og spjalla um lífið og tilveruna. Þótt ég hafi ekki þekkt hann mjög náið fann ég fyrir sorg og söknuði þegar ég frétti af andláti hans.“
Þórunn Sigurðardóttir leikstjóri með meiru segir fréttir morgunsins dapurlegar. „Þeim fækkar óðum gömlum félögum sem unnu saman á Þjóðviljanum í gamla daga. Minnist margra góðra stunda með Merði, sem var mikill húmoristi og skarpur svo eftir var tekið.“
Og Illugi Jökulsson rithöfundur segir: „Svo mikill ljómandi maður hann Mörður.“
Hélt alltaf með Merði
Atli Viðar Þorsteinsson kvikmyndagerðarmaður og plötusnúður bregður óvæntu ljósi á Mörð, en hann segir svo frá að þegar hann var lítill hafi hann alltaf horft á Dagsljós:
„Af einhverjum ástæðum hélt ég mikið upp á „skrýtnu karlana“, sem voru ekki Radíusbræður heldur Hannes Hólmsteinn og Mörður Árnason. Það var eitthvað við að sjá þessa tvo menn þusa og rífast um mál sem ég náði ekki alveg sem höfðaði til mín, og ég hélt alltaf með Merði. Það var eitthvað við hann sem sagði mér að hann væri að tala fyrir því sem var rétt, á meðan Hannes var bara að hafa hátt.“
Atli segist aldrei hafa hitt Mörð, sem honum þykir miður því það hefði verið góður kaffibolli til að drekka.
Páll Valsson útgefandi segir hart að sjá á eftir jafn öflugum manni og Merði svo langt um aldur fram.
„Við Mörður unnum saman í mörg ár og af fáum hef ég lært meira í ritstjórn. Hann var frábær ritstjóri, snjall málfræðingur og tutor, var lagið að uppfræða um ýmsar launhelgar málfræðinnar. Mörður var líka manna skemmtilegastur þegar sá gállinn var á honum. Útgáfa hans á Passíusálmunum er mikið afrek sem lengi mun standa.“
Ákaflyndur badmintonspilari
Til þess er tekið hversu kurteis Mörður var alla jafna í skoðanaskiptum en þó aldrei skoðanalaus og lét hann til sín taka í rökræðum á opinberum vettvangi. Jónas Már Torfason, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Kópavogi, kemur inn á þetta.
„Á vettvangi Samfylkingarinnar tókumst við oftar á en ekki, vorum ekki sammála um nokkur af okkar bitbeinum jafnaðarmanna, þótt það hafi sannarlega komið fyrir að við vorum samherjar í rökræðum innan flokks. En Mörður var gæddur þeim eiginleika, sem sífellt virðist verða sjaldgæfari, að hann vissi hvað honum fannst og var tilbúinn að segja það.“
Gunnsteinn Ólafsson tónskáld segir Mörð hafa verið eftirminnilegan samferðarmann. „Ég man fyrst eftir honum í Stúdentaleikhúsinu þar sem hann lék nasistaforingja og sýndi þar frábæran leik. Á níunda áratugnum var Mörður öflugur félagi í SÍNE, Sambandi íslenskra námsmanna erlendis, ásamt Emil Bóassyni og Má Jónssyni.“
Þetta mun hafa verið á þeim tíma sem SÍNE voru áberandi baráttusamtök í íslensku þjóðlífi og mikið mæddi á þeim félögum. „Þegar ég kom heim frá námi vakti Mörður athygli mína sem ákaflyndur badmintonspilari á næsta velli þar sem hann átti það til að stappa niður fótum ef illa gekk svo söng í salnum. Var þá talað um grundarskjálfta. Mörður var með litríkari mönnum og því er það sannarlega dapurlegt að sjá á eftir honum svo langt fyrir aldur fram.“
Róttækasta fólkið í rýminu
Mörður kom víða við. Inga Auðbjörg Straumland, fyrrverandi formaður Siðmenntar, hvar Mörður sat í stjórn, minnist hans: „Mama maxima mentora –“ var yfirleitt það sem heyrðist hinum megin við símtólið þegar ég sló á þráðinn til hans Marðar. Ég hafði nefnilega fengið að fylgja honum í hans fyrstu athafnir sem athafnastjóri hjá Siðmennt og á móti fylgdi hann mér, reyndum athafnastjóra en áratugum yngri, og fylgdist með mér að störfum.“
Inga segir, eins og svo margir, að þau hafi ekki alltaf verið sammála en hann hafi verið hjálpsamur og ávallt tilbúinn að leggja félaginu lið. „Hann var liðtækur í karaokísöng á athafnastjóraþingum, alltaf fyrsti maðurinn sem ég mætti á mótmælum og til í að glensa og grína, með geimstöðvarbakgrunn á fjarfundum. Við tókum reglulega að okkur þýðingarverkefni saman en rákumst oft rækilega á þegar kom að þætti kynja í tungumálinu okkar.“
Inga segir þau hafa átt samleið í Samfylkingunni „ … á meðan Samfylkingin átti samleið með okkur. Á síðasta landsfundi leið mér þó eins og við Mörður — fertuga konan og sjötugi karlinn — værum einu róttæku unglingarnir eftir í salnum, og þrátt fyrir að Möddsterinn splæsti í leigubíl til að tryggja að ég kæmi aftur daginn eftir þrátt fyrir lýðræðisleysið á landsfundi, þá fór það vissulega svo að ég hjólaði grenjandi heim daginn eftir og skráði mig úr flokknum. Ef við, gömlu skarfarnir, erum róttækasta fólkið í rýminu þarf flokkurinn að hugsa sinn gang. Allavega. Mörður var vinur minn. Félagi. Meðstjórnandi. Húmanistabróðir. Barnapía. Ráðgjafi. Ég á eftir að sakna hans.“
Einn sá klárasti
Egill Helgason sjónvarpsmaður segist eiginlega alltaf hafa vitað af Merði því feður þeirra voru saman í bekk í menntaskóla.
„Pabbi kenndi honum málfræði í Háskólanum og ég veit að hann var alltaf svolítið fúll yfir því að Mörður skyldi ekki gera málfræði á akademísku stigi að ævistarfi sínu - hann sagði að Mörður hefði verið einn klárasti nemandi sinn fyrr og síðar,“ segir Egill.
„Sjálfur kynntist ég Merði fyrst að ráði í París 1978 þegar ég fékk að gista hjá honum i íbúð lengst upp í Belleville sem þótti ekki fínt hverfi. Fórum saman á Bob Dylan-tónleika sem voru sögufrægir - þá hafði þetta átrúnaðargoð okkar ekki stigið mikið á svið í langan tíma. Mörður var leiftrandi gáfaður, mælskur, stundum jafnvel um of, hvass, gat verið bráðfyndinn.“
Þeir hafi báðir verið miklir KR-ingar og átt margar stundir saman á vellinum - og reyndar á ýmsum knæpum. Þá hafi þeir stundum spilað saman fótbolta.
„Mörður var mikið félagsmálatröll og þar fylgdi ég honum engan veginn. Einhvern tíma skráði hann mig af miklu ofurkappi í pólitískt félag að mér forspurðum – ég var ekki sérlega hress með það. Linda, mín elskulega vinkona, eiginkona Marðar, sagði einu sinni við mig að hún fylltist kvíða hvenær sem Mörður færi út í glugga. Hún óttaðist þá að Mörður væri með útifund fyir utan. En þótt Mörður yrði ekki akademíker eins og faðir minn vildi, liggur mikið starf eftir hann á vettvangi íslenskrar tungu. Menn nefna ýmsar útgáfur, en mér eru kærastir Málkrókar. Það eru pistlar sem Mörður samdi upp úr útvarpsþáttum sínum um íslenskt mál. Þetta eru frábærar greinar, einhver bestu skrif um íslenska málnotkun sem völ er á. Mér finnst hann Mörður kveðja alltof snemma. Hann er einn af þeim mönnum sem ég er þakklátur fyrir að hafa átt samleið með. Mikill er missir Lindu.“
Kom viti í siðanefndina
Gunnar Smári Egilsson ritstjóri á Samstöðinni segist hafa brugðist illa við andlátsfregninni, hann hefur fæð á dauðanum þessa dagana:
„Hvers vegna fékk Mörður ekki að lifa lengur, hvaða rugl er þetta orðið? Mér fannst Mörður eldast vel, kannski fannst dauðanum hann eldast of vel, komin var yfir hann ást á því sem er og þarf ekki að breyta. Mörður sem ég kynntist sem ungur maður vildi breyta flestu. Allavega töluðum við um fátt annað en það sem þurfti að laga.“
Gunnar Smári segir Mörð hafa verið betri í því en sig, hann hafi haft seiglu og þolinmæði sem hann skorti, til að leggjast yfir mál og þoka áfram. Hann hafi verið duglegri.
„Við sögðum í þá daga kjánalega gamansögu af Merði; að Linda hefði bannað honum að vera í öllum þessum nefndum, hópum og félögum, á þessum endalausu fundum og Mörður lofað að hætta. En þegar hann þóttist vera úti í eldhúsglugga að reykja þá voru alltaf þrír eða fjórir allaballar í garðinum til að funda með honum. Það ætti einhver að taka saman það sem Mörður vann að um dagana, mál sem hann reyndi að finna lausn á, ágreining sem hann reyndi að settla.“
Þetta var fyrir utan allar bækurnar sem Mörður skrifaði, las yfir og lagfærði. Gunnar Smári segist hafa leitað til hans þegar siðanefnd Blaðamannafélagsins var að drepa blaðamenn á jaðarmiðlunum.
„Hver sem var gat sótt áfellisdóm til nefndarinnar og farið með hann niður í héraðsdóm að sækja bætur. Við fengum Mörð kjörinn í siðanefnd þrátt fyrir ægivald Moggamanna á félaginu og hann lagaði þetta, kom vitinu fyrir siðanefnd. Ég veit ekki hvort nokkur þakkaði honum fyrir það eða margt sem hann gerði.“
Enginn faðmur jafn breiður og hans
Margrét Tryggvadóttir formaður Rithöfundasambands Íslands minnist Marðar: „Getur þú nú ekki verið annars staðar?“ Þetta segir Margrét fyrstu orð sem Mörður sagði við hana þegar þau hittust fyrst sumarið 2000 en Margrét hafði verið ráðin sumarstarfsmaður á ritstjórn Máls og menningar en átti enga fasta starfsstöð. Mörður hafði verið í sumarfríi og því var mér troðið inn á minnstu skrifstofuna, þar sem orðabókaritstjórarnir störfuðu alla jafna. „Nei,“ sagði ég, „ég á að vera hér núna.“
„Við Mörður unnum saman á ritstjórn M&M og svo Eddu – útgáfu. Síðar lágu leiðir okkar saman á Alþingi þar sem við vorum alltaf samherjar þótt við værum hvor í sínum flokknum, hann í stjórn en ég í stjórnarandstöðu. Við vildum bæði hræra upp í hlutunum, vorum treg til að gefa afslátt af réttlætinu eða samþykkja málamiðlanir sem gerðu réttlætismál gagnslaus. Við vildum líka alltaf leyfa náttúrunni að njóta vafans.“
Margrét nefnir að hún hafi seinna verið varamaður hans í stjórn RÚV þar sem Mörður var fyrirmyndaraðalmaður sem hafði hana með í ráðum. „Eftir að minni þingsetu lauk var hann duglegur að hvetja mig til að halda áfram á því sviði og benda mér á glufur í hans eigin flokksliði sem honum fannst tilvalið að ég fyllti. Þegar ég gekk loks til liðs við Samfylkinguna var enginn faðmur jafn breiður og hans.“
Alltaf gaman og þroskandi að hitta Mörð
Hér eru aðeins fáein dæmi tekin, en fjöldi minnist nú Marðar. Orð Flosa Eiríkssonar, formanns Breiðabliks með meiru, eru hér nefnd að endingu.
„Við Mörður Árnason vorum baráttufélagar og vinir lengi. Við kynntumst fyrst í kringum landsfund Alþýðubandalagsins 1987, unnum mikið saman stuttu seinna þegar ég var framkvæmdastjóri flokksins og hann aðstoðarmaður Ólafs Ragnars í fjármálaráðuneytinu, rifumst stundum, drukkum stundum og hlógum oft en alltaf var gaman og þroskandi hvar sem við rákumst saman.“
Flosi birtir mynd af þeim frá landsfundi Samfylkingarinnar 2016: „Með þeim góðu félögum, Gesti Guðmunds, Óskari Guðmunds, Kristjáni Valdimars og Kidda Karls. Það fækkar í hópi þessara góðu og frjóu félaga og vina.“